Lausir steinar í eyranu
Spes. Bara spes. Vaknaði á þriðjudag við það að herbergið var að snúast á fullu. Reyndi að setjast upp en gólfið hallaði 45° svo að ég datt bara um koll. Ég var heima þennan dag.
Næsta dag fór ég í skólann, enda Independant Games Seminar í ITU. Skemmtilegir fyrirlestrar þar á ferð. Við (Elysium Games) vorum skráðir og fengum því nametags. Þetta nametag er gulls ígildi. Ég man ekki hvað ég hef oft séð fólk í aðalsalnum í skólanum munchandi kökur og drekkandi gos, með nametag á barminum. Núna er nametagið í skápnum og ég get alltaf fengið mér kökur. Jei.
Síðan klukkan 3 var fundur með gaurnum frá IO sem er að styðja okkur í fyrirtækinu. Hann var ofurjákvæður, og minntist oftar en tvisvar á að IO gæti langað til að kaupa hugmyndina, okkur eða hvort tveggja. Ég var ennþá ruglaður í hausnum. Gat ekki horft upp eða niður að ráði.
Svo fór ég á læknavaktina. Læknirinn var ekki lengi að komast að þeirri niðurstöðu að ég væri með lausa steina í miðeyranu. Hann sagði að þetta myndi lagast á viku eða að ég gæti farið til eyrnalæknis og látið hagræða þessum steinum. Bara spes.
Á fimmtudaginn var MTV Europe Awards í Kaupmannahöfn. Tommi og Arngrímur komu í heimsókn til að horfa á herlegheitin. Á föstudeginum var svo J dagurinn. Julebryg, julebryg, Tuborg julebryg (sungið við Jingle Bells). Ég og Ragnhildur fórum á Pilegården með Christian og hittum þar held ég alla íslendingana sem ég þekki í Köben (ef þú varst ekki þar og býrð í Köben hef ég gleymt þér. Kvartaðu í kommentin, vælukjói). Arngrímur var að segja öllum á staðnum að ég væri með steina í eyranu, og fólk sem ég þekkti ekki einu sinni var að spyrja mig hvort ég væri gaurinn með steinana í eyranu. Algjör snilld.
Ég er enn að bíða eftir tölvunni minni. Hef verið að fylgjast með ferð hennar gegnum póstinn. Hún er í hverfispósthúsinu mínu og býst ég við því að ég geti sótt hana á morgun. Ég fór í Bilka og keypti mér tölvuskjá í dag. Doldið spes að kaupa skjá og sokka í sömu búðinni. Þessi búð selur ALLT. Annars er þetta Samsung 20” wide skjár. Tölvan er mestmegnis hugsuð til að vinna á svo að ég splæsti í víðan skjá, en þeir þykja henta frekar illa fyrir leiki. Whateva, ég á alltaf xboxinn.

[nerd warning]
Intel 6600 – Core 2 Duo 2.4 GHz
Nvidia Geforce FX 7900GTX 512 MB skjákort
4 GB DDR2 minni
Maxtor 300GB S-ATAII 3Gb/s harður diskur
[/nerd]
Í dag hef ég ekkert fundið fyrir steinunum. Held ég sé orðinn góður ...spes.

6 Comments:
Tölvan hljómar mjög vel. Rústar minni. Það er annars mjög sweet að hafa mikið minni. Ég er með 2GB á minni og það munaði sko um það. Sérstaklega þegar ég var að gera léleg minnisfrek forrit í vor.
Hvað með skjáinn, hvernig upplausn ræður hann við?
Hlýtur að vera einhver mongó upplausn fyrst hann er widescreen...
Mig langar annars geðveikt í Dell 20" LCD (1600x1200 upplausn). Gallinn er bara að hann er jafnvel dýrari hérna en á Íslandi. Demit!
Hann ræður við 1680x1050. Veit ekki alveg hvernig leikir taka því, en eins og alþjóð veit þá er mjög ljótt að hafa LCD skjá í ekki-native upplausn. Hins vegar þarf að passa sig með stóra LCD skjái að ef maður ætlar að spila leiki í 1600x1200, til dæmis, gæti þurft að slökkva á helling af góðgæti til að halda framerate-inu uppi.
aha. Skil thig. 1680x1050 hljomar bara helviti vel! Ottalega skritin upplausn samt. LCD skjair i ekki sinu native upplausn er oft vidbjodur.
Kristján og Palli í ekki sinni native upplausn eru viðbjóður. ZOOM ZOOM ZOOM!!!
Hey!
Gaurinn í bakgrunninum mínum er ekki í native upplausn. Þarf að skipta honum út.
Skrifa ummæli
<< Home