Sjónvarpið
Sjónvarpið okkar er skrítið. Í fyrra dag skipti það út nokkrum litum. Blár varð rauður, grænn varð blár og rauður varð gulur. En samt bara nálægt efri hornunum. Tók samt doldinn tíma að fatta þetta. Ég var að horfa á CSI og var alltaf að hugsa, “þeir hata ekki að nota filtera”. Svo setti ég family guy í gang og himinninn var alltaf rauður/fjólublár gradient. Svo fattaði ég.
Ég spurði Christian hvað væri best að gera og hann sagði mér soldið merkilegt. Í danmörku er hægt að skila vöru þó að það sé ekkert að henni innan við 30 daga frá því að hún var keypt. Það er nóg að hún uppfylli ekki væntingar þínar. Þeir borga þér meir að segja í peningum. Ekki inneign eða einhverju svoleiðis. Ef hinsvegar tækið bilar geturðu ekki skipt henni. Verslunin má taka það í viðgerð í “hæfilega langan tíma”, sem er oftast einn mánuður. Ef það er ekki hægt að laga tækið færðu nýtt. Ef það var í ábyrgð.
Þetta þýðir að þú getur farið út í búð þegar Playstation 3 kemur á markaðinn. Leikið þér með hana í 29 daga. Skilað henni aftur og fengið peningana til baka.
Í gær lagaðist sjónvarpið samt af sjálfu sér. Það er gott, því að núna er hægt að horfa á það. Ég held samt að við höfum keypt það fyrir rétt rúmum mánuði, svo að það er ekki hægt að skila því, þó að það virki núna.
Talandi um sjónvarp: Tékkið á þessari auglýsingu! (og the making of)
P.s. Fyrst allir eru með embedded youtube þá geri ég það líka!
5 Comments:
Bakgrunnurinn... aðeins of gay. Væri hægt að réttlæta hann ef það væri sumar en... nei.
Þetta bögg með sjónvarpið, er það ekki bara eitthvað seguldót? Hljómar eins og vesen sem ég hef haft.
Youtube-video-ið. Fuckin love that guy! Þú ættir að sjá hvað hann gerir ef ég er í bolnum! He's craaaaaazy!
A tad gay.
Kannski var einhver segull að messa upp sjónvarpinu þínu.
Eru nokkuð segulómskoðunartæki í húsinu þínu?
Japanir eru ekki hægt!
Kári
hehehe
Skrifa ummæli
<< Home