<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar/15962727?origin\x3dhttp://pallragnar.blogspot.com', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>
[LJÓSMYNDIR]
[ANIMATION] [BLÝANTUR]
[PRENTAÐ]
[UM MIG]
[LINKAR]
[BLOGG]
[PIXEL]
[3D]

fimmtudagur, september 28, 2006

Bow wow jigga bow wow

Úff, long time no see. Ég er búinn að vera fáránlega busy undanfarið. Ég er í mera en 100% námi og svo að sinna fyrirtækinu. Já ég er einn að fjórum stofnendum Elysium Games. Staðan sem ég sinni er Art Director. Fyrir utan okkur fjóra eru búin að bætast tvö við. Ein er teiknari, en hinn er level designer. Eins og við má búast heyra þau undir mig svo að ég er yfirmaður. Merkilegt.

Verkefnin sem ég er að gera í skólanum eru 2 og svo er ég í einum kúrs í DTU með Tomma og Peder. Annað verkefnanna bjó ég til og er einn í. Ég ætla að tileinka mér vinnuaðferðir 3D módelera sem gera grafík fyrir Next Generation tölvuleiki. Til þess þarf ég að læra á Zbrush og ég hlakka mikið til. Ég mun gera þennan dúdda hérna fyrir neðan:



Hann er teiknaður að Miles Teves nokkrum, sem er bara nokkuð frægur. Hann hannaði RoboCop, Darkness (púkann í legend, sem ógeðslega töff) og hefur unnið við Interview with a vampire, Total Recall, Idle Hands, Mummy, Hollowman, Planet of the Apes (endurgerðin), Batman (3stk), Spiderman, Pirates of the Caribbean, King Kong og fáránlega margar aðrar.
Ég sendi honum póst og spurði hvort ég mætti gera hann í 3D og honum fannst ekkert sjálfsagðara.

Hitt verkefnið er að búa til leikjavél og einfaldan leik með leikjavélinni fyrir Xbox 360 tölvu. Það er fáránlega krefjandi og erfitt!

Svo erum við ragnhildur að flytja á sunnudaginn. Ekki þó í Tietgen. Það gerist 15 okt og erum við spennt fyrir því. Þangað til leygjum við af frænda ragnhildar sem á íbúð í Fredriksberg, ekki langt frá þar sem við búum núna.

Ég var búinn að ákveða að skella mér á Dell XPS 700 tölvu þangað til að Svein talaði við mig í dag. Hann sýndi mér að það væri hægt að púsla saman meiri ofutölvu fyrir sama verð og ég er núna á báðum áttum.

Sjáumst

13 Comments:

Blogger Björk said...

vá það er aldeilis. Ekket smá flott hjá þér, bara kominn með fyrirtæki og allt. Þú átt eftir að massa þetta.

10:59 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Demit! Ég skrifaði eitthvað ógeðslega skemmtilegt komment hérna í gær. Hefur greinilega farið til fjandans!

Líst annars vel á þetta shit! Schmancy vefsíða og allt! Kominn í contact við stór nöfn líka og sona!
Hlakkar til að sjá eitthvað af þessu stöffi á síðunni!

6:19 e.h.  
Blogger Palli said...

Jebbs.

2:18 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

flottur titill,
ég var reyndar að reyna að kíkja á heimasíðunni í LSH tölvunum sem styðja ekki flash.
Búhúu verð að bíða þangað til ég kemst heim.
Bið að heilsa

2:31 e.h.  
Blogger Balur said...

3 brjóst...þvílík skilvirkni!

orð dagsins:mmmceblv

1:08 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Coooool! Gaman ad sjá ad thú hefur nóg ad gera... og en skemmtilegra ad lesa ad thú hefur gaman af hlutunum sem thú ert ad geraw :)

Kári

4:51 e.h.  
Blogger Palli said...

Já það munar öllu að hafa gaman af þessu. Það er rosalega pirrandi að eiga ekki tölvu. Maður er miklu lengur í skólanum en maður vill, en aftur á móti á maður gott samviskubitslaust frí þegar maður er heima.

P.s. Segir maður gaman af.. eða gaman að..?

10:41 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Það er gaman að...
Ég hef gaman af...

7:55 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

þykja gaman að...
hafa gaman af...

8:00 e.h.  
Blogger Palli said...

Takk anonímús (rúnkmús?)

Ég hafði rétt fyrir mér. Ég mun aldrei efast um sjálfan mig aftur.

12:17 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Anoní er ekki onaní!

6:43 e.h.  
Blogger Palli said...

Hahaha! já alveg rétt.

6:16 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

NEIIII, ég trúi ekki ad ég hefi notad hid fagra íslenskamál vitlaust!!!

Ég kenni ungverska lyklabordinu um!

Kári

8:05 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home