<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar/15962727?origin\x3dhttp://pallragnar.blogspot.com', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>
[LJÓSMYNDIR]
[ANIMATION] [BLÝANTUR]
[PRENTAÐ]
[UM MIG]
[LINKAR]
[BLOGG]
[PIXEL]
[3D]

mánudagur, ágúst 28, 2006

Copyright

Jæja. Tvær myndir. Fyrsta er af svefnaðstöðunni okkar. Tvær vindsængur (og önnur lekur). Þessi mynd var tekin áður en við fórum í IKEA og keyptum fleiri lampa. Það er eitt loftljós í íbúðinni og þess vegna var þessi lampi fyrst um sinn eina ljósið í íbúðinni á kvöldin. Það voru ekki heldur til stólar en þeir eru komnir núna. Núna vantar okkur bara borð þá er þetta bara komið í bíli held ég.


Seinni myndin er af stigaganginum okkar. Það eru ekki allir sem passa upp á höfundarréttinn á graffítíinu sínu. Þessi mynd sýnir líka að Stigagangurinn hefur ekki verið málaður síðan 1987!



Annars er geðveikt skrítið að hafa ekki sjónvarp, eða internetið. Ef ég hefði sjónvarp gæti ég allavega tengt harða diskinn eða xboxið. Í staðinn þarf maður að tala saman eða lesa bók, oj bara ;)

Annars meira í fréttum: Ég er að taka þátt í að stofna fyrirtæki. Við erum 4 úr skylmingaþrælahópnum sem ætlum að láta reyna á söluhæfni okkar. Við ætlum að taka conceptið upp á annað plan og reyna að fá alvöru dreifingarsamning. Ef það tekst þá fyrst fara hjólin að snúast. Erum með sterka bakhjarla sem drífa okkur áfram og gefa okkur ráð. Annar vinnur hjá IO en hinn er aðal-leiðbeinandinn okkar úr verkefninu. Þetta er gert alveg utan við skólann og ótengt ITU (að mestu).

9 Comments:

Blogger T said...

Þú getur náttúrulega tekið lampann þinn sem er heima hjá mér. Þennan sem þú braust. Manstu? Ha?

Nei, nei, ég er ekkert bitur, ég bara þoli ekki ballett.

2:20 f.h.  
Blogger Palli said...

Þetta er hann á myndinni. Tókum bara glerið af honum. Sem ég braut. Manstu? Ha?

8:23 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Það er eitthvað spes við þessa setningu við erum 4 úr skylmingarþrælahópnum sem.... Ég vissi ekki að þú hefðir verið skylmingarþræll!

10:00 f.h.  
Blogger T said...

Ha, ha, ha, ha, HAH!

2:39 e.h.  
Blogger Palli said...

Það sem þú veist ekki um mig myndi hræða þig.

12:30 e.h.  
Blogger Balur said...

Hahaha! En...til hamingju með að vera næstumþví orðinn næsti John Carmack, hope it works out.

10:04 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Blessuð skötuhjú, gott þið eruð komin með "sama stað" og vindsængur, hljómar rosa kósý (",) en jæja mér finnst að Ragnhildur eigi nú að reyna að komast á netið bráðum og senda mér e-mail. Mig langar svo í fréttir úr baunalandi. Annars eruð þið velkomin til Gautaborgar í heimsókn.
sjáumst Alla

9:16 f.h.  
Blogger Palli said...

Já takk fyrir boðið Alla. Þú ert líka velkomin hingað. Getum alveg bætt við einni vindsæng! Annars er Ragnhildur á Langalandi í fyllerísferð með nýja skólanum sínum en kemur í bæinn um helgina.

10:55 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Heyrru þetta graffítí er the official inspiration fyrir Worms leikina?

12:52 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home