<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar/15962727?origin\x3dhttp://pallragnar.blogspot.com', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>
[LJÓSMYNDIR]
[ANIMATION] [BLÝANTUR]
[PRENTAÐ]
[UM MIG]
[LINKAR]
[BLOGG]
[PIXEL]
[3D]

þriðjudagur, ágúst 22, 2006

Aftur í baunalandið

Kominn út til DK og kominn með húsnæði út september. Get flutt inn á morgun um leið og ég skrifa undir samning. Það er frábært vegna þess að núna gistum við hjá Tomma sem býr í Nærum (samt ekki næríum). Það tekur okkur klukkutíma að komast niður í miðbæ þaðan og þá á aumingja Ragnhildur eftir að fara til Roskilde sem er hálftíma í burtu. Úff. En nýja íbúðin er í Fredriksberg niður í miðbæ.

Þar sem hún er á fjórðu hæð munum við ekki burðast með rúmið mitt þangað og mun Tommi því fá það út september. Íbúðin átti að vera delvist møbleret en það þýðir víst stöng með herðatrjám og gardínur. Íbúðin verður semsagt MJÖG tóm næsta mánuðinn. Annars er ég núna í ITU af því að það er eini staðurinn sem við getum farið á netið. Nokkuð löng leið til að fara á netið ef við hefðum gist áfram hjá Tomma.

Annars er heitt og rakt hérna. Ógeðslega rakt, og nógu heitt til að maður vorkenni gothurum.


Að lokum mynd í boði Google Images. Þetta var fyrsta myndin þegar ég leitaði að Tommi:

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Gott að þið eruð eitthvað búin að redda ykkur. Alveg ómögulegt að vera alltaf að kúra í fanginu á Tomma...

8:13 e.h.  
Blogger T said...

öhm ég veit ekki hvort ég hef pláss fyrir rúmið þitt. Spurðu Baldur.

10:16 e.h.  
Blogger T said...

Já og til hamingju með íbúðina.

11:08 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Palli, checkaðu á þessari fjarstýringu ef þú svitnar mikið á höndunum við að spila
töööff fjaaarstýýýýriiing

8:57 f.h.  
Blogger Palli said...

Vá! þetta er eitthvað fyrir mig! Ég svitna í lófunum bara við tilhugsunina.

11:47 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home