<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar/15962727?origin\x3dhttp://pallragnar.blogspot.com', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>
[LJÓSMYNDIR]
[ANIMATION] [BLÝANTUR]
[PRENTAÐ]
[UM MIG]
[LINKAR]
[BLOGG]
[PIXEL]
[3D]

miðvikudagur, september 06, 2006

Daglegt líf

Ég er orðinn gestastúdent við DTU. Ég er í kúrsinum Computer Graphics með Tomma og Peder. Svo er leikur í kvöld. Stefni á að horfa á hann niðri í bæ með Ragnhildi, Tomma, Svein, Fróða, Geir, Daða og fleirum. En áður en það gerist þarf ég að drösla borðplötu og fótum frá Nærum til Fredriksberg.

Ég sá gaur í gær sitja með það sem virtist vera tvær flöskur, en var svo kíkir þegar ég kom nær. Hann sat á gangstéttinni fyrir utan húsið mitt og horfði upp á við. Ég hugsaði "þvílíkur perri, hann er ekkert að fela það þessi!" en hann var þá að glápa á tunglið, sem var fullt. (sem er í raun miklu perralegra)

Ég er að fara að kaupa mér sjónvarp í vikunni. Það eru 3 kostir í stöðunni:

1. Að kaupa nýtt drasl 20" sjónvarp á 1000dkr sem maður getur svo selt í vor fyrir nokkurnveginn það sem maður borgaði fyrir það.

2. Að reyna að redda gamla sjónvarpinu mínu 17" frá íslandi (sem er mono) og hentar ekki sérstaklega vel fyrir Xbox.

3. Þriðji kosturinn er eiginlega ekki option þar sem ég bý á 5. hæð í húsi án lyftu. Hann er að kaupa wisescreen 32" hlunk á 1500dkr sem myndi gleypa meiripartinn af íbúðinni (ásamt rafmagnsreikningnum).

Jæja ég held ég sé búinn að ákveða mig.

Er heima hjá Toma að skrifa þetta. Það er fáránlega vond lykt hérna: Blanda af harðfisk, blautum hundi og Tommalykt.

Annars sá ég Miami Vice í gær. Meh. I got confused :(

9 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ég hefði örugglega tekið 32" sjónvarpið þar sem það munar ekkert "það" miklu fyrir miklu stærra og betra sjónvarp... Gætir bara fengið einhvern durt eins og Tomma (sem þarf að komast út úr blauta harðfiskstommalyktaríbúðinni sinni) til að hjálpa þér með það upp!

11:12 e.h.  
Blogger T said...

Lykilorðið er samt "hlunk". Þetta er risasjónvarp. Stærra en píanó. Þannig að ég verð bara að segja: PANT EKKI!

Svo er engin tommalykt í íbúðinni, bara svona blanda af harðfisk og blautum fötum. Það er nefnilega búið að vera rigning síðustu daga. Þú getur hins vegar komið eftir helgi Palli og fengið að finna tommalykt. Það er ákveðin upplifun.

11:38 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Gaurinn með kíkinn var greinilega að leita að midgets on the moon!

ps. ég veit ekki hvort er skemmtilegra, að kjósa í Rockstar Supernova eða Word Verification hjá þér...

2:15 e.h.  
Blogger Balur said...

Word Verification orð dagsins er: Vsmlork. ALL HAIL COMMANDER VSMLORK!!!

2:29 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

HAIL COMMANDER VSMLORK

4:02 e.h.  
Blogger Thor said...

Nota ekki allir perrar trickið að beina kíkinum á tunglið þegar einhver sér þá???
Ég veit ég mundi gera það :P

Palli, veldu 3. kost og leyfðu Xbox að njóta sín.

7:04 e.h.  
Blogger Palli said...

Of course! midgets on the moon!

Annars valdi Ég fyrsta kostinn. Spilaði Xbox í 8 tíma í gær :D

Komst raunar að því eftir að ég keypti það að það er ekki plug fyrir heyrnartól á því svo að það er ekki hægt að læra nálægt því. Hmm, leysi það einhvern veginn.

orð dagsins: nzzbqo

10:49 f.h.  
Blogger Jói Ben said...

Er þetta danska?

9:47 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Adsjálfsögdu kaupir thú 32"! Ekkert annad í stödunni.

Kári

2:55 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home