D3
Um helgina fór ég á D3, danskt tölvuleikja Expo. Dönsk útgáfa af E3, og stóð yfir helgina. Elysium Games borguðu, sem þýðir raunar að við borguðum þetta sjálfir. Við fréttum að risarnir Sony, EA, Nintendo og fleiri dreifingaraðilar myndu vera þarna svo að við splæstum í nafnspjöld. Fyrsta nafnspjaldið mitt! Geðveikt gaman. Planið var semsagt að hitta einhverja bigshots, plana fundi og henda í þá nafnspjaldi.
Þegar við komum á staðinn uppgötvuðum við að þetta var bara einföld sölusýning. Tölvuleikjafyrirtækin voru þarna bara til að selja tölvuleikina. Ég hef aldrei séð jafn marga bólugrafna unglinga samankomna á einum stað! Það voru engir (tja fáir) bigshots þarna, bara sölufólk og krakkar sem voru fengnir til að vinna þarna. Það var svolítið svekkjandi.
Hins vegar var Sony með 6 PS3 tölvur og leiki sem þeir voru að sýna inni í lokuðum bás. Mig langaði geðveikt mikið til að prófa en ég reiknaði ekki með því hvað unglingar hafa mikla þolinmæði í að standa í biðröðum. Úff. Lengsta biðröð í heimi. Ákvað að láta það bíða. Ég fór svo seinna um eftirmiðdaginn og sá dýrgripina. Holy moly! I want one. Þarna var verið að sýna 5 leiki: Motorstorm, sem var magnað flottur og mjög skemmtilegur torfæru-kappakstursleikur (og raunar flaggskip tölvunnar), Lair, sem var ótrúlega flottur drekaleikur þar sem maður stýrði dreka með nýja veltieiginleikanum á fjarstýringunni. Hef heyrt að hver dreki sé með um 100k polígonar. Maður flaug yfir landslagi með hundruðum hermanna. Mjög töff. Þriðji leikurinn var einhver fyrstupersónu skotleikur og hinir tveir voru kappakstursleikir sem ég prófaði ekki.

Motorstorm

Lair
Nintendo voru með um 20 Wii tölvur. Ég prófaði nýja Zelda leikinn og fannst stýripinnarnir doldið óþægilegir í fyrstu, en vandist þeim þó frekar fjótt. Það virðist samt eins og þessi fancy stýripinni sé bara trigger á fyrirfram ákveðnar hreyfingar, en maður hefur ekki fulla stjórn á sverðinu eins og ég hafði vonað. Ég prófaði líka baseball leik þar sem maður skiptist á að kasta boltanum til með spilarans, og slá boltann. Það var líka hægt að spila keilu, tennis og margar aðrar íþróttir þarna. Þessi leikjatölva bíður upp á marga skemmtilega möguleika, en mér fannst PS3 rústa henni hvað varðar grafík. Meir að segja Zelda hikstaði þegar mikið gekk á á skjánum. Skamm Nintendo!
Annars var sony með lang mest af dóti þarna. Þeir voru með PSP bar þar sem maður gat komið, sest og spilað PSP. Þeir voru með Singstar mót, sem var svo hávært að það heyrðist allstaðar í fölskum söng. Þeir voru með Guitar Hero mót og Buzz mót.
Microsoft voru líka með helling af XBoxum og voru að sýna alla nýjustu leikina þeirra. Þar ber helst að nefna Gears of War sem var mjög flottur. Ætla að tékka á honum eftir prófin í janúar, held ég.
Í hádeginu fórum við á Jensens Bøfhús. Það var sweet. IO Interactive var þarna og sáum við nýja leikinn þeirra, Kane and Lynch: dead men. Hann leit mjög vel út. Mjög Next Gen.
Fyrri daginn fauk eitt nafnspjald af 250 hehe. Næsta dag var meira af því sama. maður var búinn að prófa allt, og sjá allt og gat einbeitt sér að öðrum hlutum. Þennan dag fauk svo spjald númer 2. Seinni daginn voru EA búnir að bæta við sig bás þar sem maður gat spilað FIFA07 á xbox. Fínn leikur, en ekkert á við Pro Evolution Soccer 6. Fór heim ósigraður.
Ég keypti mér leik um daginn. Battlefield 2142. Frábær leikur. Segi kannski meira frá honum seinna.
Og að lokum kemur myndin:

Þetta er screenshot úr XBOX 360 leikjavélinni sem við erum að gera í skólanum. Frekar lítið að sjá hér. Landslagið er gert með hæðarmynd, Við erum með texture blending í gangi og Normal mapping. Þar að auki hef ég verið að vinna í Collision Detection og smá Physics dóti (ekki á myndinni), og við erum líka með 3D model loader sem getur bráðum tekið inn módel með beinagrindarhreyfingum. Sjáumst.

11 Comments:
Djöfull eru þessi PS3 screenshot að lúkka crazy flott!
Lookar töff!
Held að þú fáir stig í lífinu fyrir að vera kominn með nafnspjald.
Awesome! Hmm lookar screenshotið úr leiknum mínum ekki crazy flott? Þetta kennir mér að sýna ekki mitt dót með pro dóti. Buhuhu :(
Hvaða collision detection algoriþma ertu að nota? BTW þetta r0x0r http://graphics.cs.cmu.edu/projects/bdtree/
Hvert þó í? Tveir Pallar! Má þetta?
P.S.
Jú, þitt screenshot lúkkar líka crazy flott :)
Mjög töff Palli! Er þetta einhver sem þú þekkir sem vinnur að þessu?
Við erum að nota mjög einfalt test. Við tékkum hvort að collision hafi orðið og vinnum þaðan. Við notum ekki sweep test, sem athugar hvort hlutur hafi farið alveg í gegnum annan hlut (vonum bara að hlutir eigi eftir að ferðast mjög hægt í leiknum :), né tékkum við hvenær á milli rammanna áreksturinn hafi orðið og spólum til baka eins og sumir gera. Við tékkum collision með kúlum, kössum og jörðinni eins og er. Munum bæta við Polygonum ef tími gefst.
Ja sorry Palli. Þitt screenshot er kúl líka. Er með það sem desktop background núna. :)
Ég þekki ekki þessa gaura sem gerðu þetta en sá fyrirlestur með þessu, töff og frekar einfalt. Þegar ég var að vinna í þessu á sínum tíma þá notuðum við OBB kassa fyrir collision detection, það er brilljant C++ útfærsla í RAPID pakkanum hjá http://www.cs.unc.edu/%7Egeom/collide/packages.shtml
Við erum með kúlu test fyrst af því að það er svo hratt. svo er hægt að hafa heilt tré af collision hlutum, svo sem OBB og kúlur. Planið var að hafa líka poly-poly test en við höfum ekki tíma fyrir það.
Eitt sem er kúl við OBB er að það er hægt að taka línulegan hraða og segja til um hvenær kassarnir rekast saman, það er bara svoldið meiri vinna heldur en einfalt test. Það er auðvitað mun einfaldara fyrir kúlur en OBB eru þéttari.
Annars er þetta leyst vandamál fyrir stjarfa hluti, það er skiptir meira máli að fækka óþarfa samanburðum milli hluta sem gætu ekki mögulega rekist saman.
Einmitt. Við erum með dynamískt octree sem segir collision systeminu hvort árekstur er möguloegur eða ekki.
Skrifa ummæli
<< Home