<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar/15962727?origin\x3dhttp://pallragnar.blogspot.com', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>
[LJÓSMYNDIR]
[ANIMATION] [BLÝANTUR]
[PRENTAÐ]
[UM MIG]
[LINKAR]
[BLOGG]
[PIXEL]
[3D]

föstudagur, júlí 28, 2006

Belle og Sebastian

Ragnhildur bauð mér á tónleika í gær. Hún bauð mér raunar ekki í gær, en tónleikarnir voru í gær, semsagt. Emilíana Torríní og Belle & Sebastian. Emilíana var mjög góð. Hún var raunar doldið illa undirúin, og var alltaf eitthvað að ruglast milli laga og byrjaði raunar á einu lagi tvisvar. Þar að auki byrjaði hún að tala við áhorfendurna á ensku :D En það var bara kúl.

Annars var par fyrir framan okkur sem var alveg óþolandi. Það var frekar hávaxið (allavega gaurinn) og það slitnaði ekki slefið á milli þeirra, eins og eftir farandi ljósmynd sýnir:



Eins og sést á myndinni er Emilíana ekki ánægð með þau heldur.


En tónlistin var góð og við þraukuðum. Þegar Emilíana kláraði fóru þau að ná í bjór eða eitthvað svo að við færðum okkur aðeins framar. Biðum í rúman hálftíma meðan hljóðfæri B&S voru sett á sviðið. Við vorum á frábærum stað. Kom þá ekki bara par dauðans afur. Náði að smjúga sér á ská fyrir framan okkur. Uss! Þar sem gaurinn var svona stór myndaðist hálfgert svarthol fyrir aftan hann/við hliðina á mér. Þegar troðningurinn fór að aukast þurfti ég virkilega að spyrna á móti til að lenda ekki aftur fyrir aftan parið. Í staðinn vorum við föst upp við stelpuna, sem var með tagl sem hún svipaði okkur með þegar hún sneri hausnum snöggt milli gaursins og sviðsins. Hmm. En þegar Belle byrjaði minnkaði troðningurinn aðeins og djöfull voru þau góð! Vorum á besta stað, og parið var komið við hliðina á okkur stuttu eftir að tónlistin byrjaði. Allir spiluðu á fleira en eitt hljóðfæri.

Stevie, gítarleikarinn (og bassaleikari á tímabili) var geðveikt töff gaur. Hann leit soldið út eins og Buddy Holly fannst mér. Hann kom inn í jakkafötum, og söngvarinn, Stuart, tilkynnti að þeir væru í keppni, trommarinn og hann, um hver gæti verið lengur í jakkanum. Þegar langt var liðið á tónleikana fór trommarinn úr hettupeysunni sinni. Þá spurði söngvarinn Stevie hvort honum væri ekki heitt. Hann sagði að honum væri soldið kalt og væri til í hafa trefil. (Bakið á jakkanum hans var gegnblautt af svita). Þá henti einhver trefli upp á sviðið! Hann setti hann á sig og var með hann það sem eftir var af tónleikunum.

Þau fengu svo stelpu úr áhorfendaskaranum til að leika persónu í einu laginu. Hún stóð sig vel, og hann skilaði henni aftur í skarann. Hann labbaði meir að segja alveg rétt fram hjá mér. Þermeð er hann kominn í hóp merkra manna eins og Quentin Tarantino. Þeir ættu að stofna klúbb saman.

En allavega geðveikir tónleikar, bæði hjá Emilíönu og B&S.

8 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Mér finnst þessi mynd vera dáldið tvöföld. Mér finnst slefið minna mig á skýringarmynd af kynfærum kvenna og svo lítur Emilíana furðumikið út eins og typpi.
Damn freudian vision!

8:58 f.h.  
Blogger Palli said...

Hehe, sorahugurinn!!

(ekki gamli sorahugurinn!)

3:03 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Þú ættir að taka þetta próf http://uk.tickle.com/test/inkblot.html

3:05 e.h.  
Blogger Palli said...

Oj bara! tók þetta próf til enda. Mjög samviskusamnlega og allt saman. Þá þarf að borga til að sjá niðurstöðuna. Ég hata svoleiðis!

9:32 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

nei þú gast alveg séð niðurstöðuna, hún er bara svolítið falin. Ég fékk þetta:

Your Unconscious Mind Is Most Driven by Reserve. You approach the world with reserve because unconsciously, and perhaps consciously, you like to be in control. You keep your emotions to yourself and you may seem mysterious or enigmatic to others. You're often very cautious about truly expressing yourself. Even people who have known you for some time may find it hard to get close to you. Your psyche is very deep and rich; the more you learn about it, the more you will understand who you really are...

12:57 e.h.  
Blogger Palli said...

Já ég sá eitthvað álíka hjá mér. Ég fékk Imagination. Hélt að það væri bara eitthvað standard dót. Ok þá er þetta svo sem allt í lagi.

Vonandi eyðilagði ég ekki mannorð þitt Dagur :D

10:14 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Mér verður aldrei hleypt inn í fazmo eftir þetta

12:32 e.h.  
Blogger Balur said...

Your Unconscious Mind Is Most Driven by Sexuality.
Sexuality

The world is a sexy place for you – your erotic self leads the way. Whether this is because you're presently in a great physical relationship or simply want one, you are much more aware of the sexual undertones in situations than most people.

This heightened focus, coupled with your vivid imagination, can make you more likely to have original – at times risqué – interpretations of things that other people might see as innocuous. Your subconscious is telling you that you are very much alive, and have a great deal of passion to bring to life...


Þýðir þetta að ég rúnki mér of mikið?

11:50 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home