Hunangsflugan
Úff hvað ég er latur að blogga, og ég sem hef svo mikið að segja! Byrjum á einu stuttu. Ég var í sumarbústaðnum hans Kriz með honum og Tomma um helgina. Tilgangur ferðarinnar var að æfa fluguveiðar. Við fórum á mínum bíl uppeftir á föstudag og spiluðum Axis and Allies. Ég var Bretland, Kriz var Sovétríkin og Bandaríkin og Tommi var Japan og Þýskaland.
Tommi rústaði okkur, aðallega af því að Japan fékk að vera óáreitt í kyrrahafinu og láta öllum illum látum (þið þekkið Japan;). Þess má geta að Tommi á spilið og hann var gjaldkerinn. Hmm..
Þegar við komum í bústaðinn fann ég hunangsflugu á gólfinu sem var mjög máttfarin. Við redduðum henni sykurmola bleyttum í vatni og var hún himinlifandi með hann. Undir lokin var hún næstum dansandi af ákefð og að lokum settum við diskinn út svo að hún gæti flogið burtu. Ég var með Myndavélina mína og nýju Linsuna (sem ég ætlaði að vera búinn að blogga um, but hey!). Hérna eru myndirnar og hérna eru nokkrar úr garðinum. Mæli með því að velja all sizes og velja næst stærstu myndirnar.

Click me!
Á laugardaginn fórum við að vatninu sem er nálægt bústaðnum og prófuðum að kasta. Ég var með mína (venjulegu) stöng og reyndi að veiða með henni á flugu, en þá að það væri mikið nart var ekkert bitið. Það gerðist svo þegar ég var með flugustöngina að ég var að losa lítilsháttar flækju að fiskur beit á. Ég hef aldrei haldið á flugustöng áður og sleppti línunni og fór að hala inn með hjólinu. Þá datt flugan úr kjaftinu á fiskinum og hann synti í burtu.
Það er mjög spes að kasta með flugustöng. flugan er svo létt að maður kastar henni ekki heldur línunni. Þetta er soldið eins og að svipa, með fáránlega léttri svipur. (En samt ekki)
Ég var búinn að segjast ætla að veiða einn fisk svo að ég fór og gróf upp orma með berum höndum og beitti á venjulegu stöngina. Eftir að öngullin hafði verið hreinsaður nokkrum sinnum skipti ég yfir í minnsta öngulinn sem ég átti. Aftur var hann hreinsaður af ormum. Í seinasta kastinu (af því að ég átti ekki fleiri orma) þá veiddi ég fisk og landaði honum. Þetta var fínasti fiskur en ég sleppti honum aftur. Þess má geta að Tommi heldur því fram að hann hafi veitt fisk af því að hann náði að lyfta honum upp úr vatninu. Ef það telst með þá veiddi ég 2 og held að Kriz hafi líka gert það.

6 Comments:
Þetta minnir mig bara á atriði úr sjónvarpsþætti.
Chloe: I'm sorry, I wasn't gonna dump on you
Lana: Hey, If you can't dump on your friends
Chloe: Exactly
Heimild: Smallville, sería 2, episode 3
Það telst bara með ef hann fer allur upp úr vatninu. Exactly!!!
riiiight...
já, ég held að hann verði að fara allur upp úr vatnina, upp á land og snertur a.m.k. einu sinni.
Myndirnar... meganice!
The Japanese? Those sandal-wearing goldfish tenders? Ha ha! Bosh! Flimflaw!
"...held að Kriz hafi líka gert það."
tíhíhíhí
Skrifa ummæli
<< Home