Marokkó - Miðvikufimmtudagur – Lengsti dagur í heimi
Áður en ég fór í vinnuna henti ég nokkrum spjörum í þvottavélina. Það var eini undirbúningurinn fyrir ferðina fram að þessu. Ég ákvað að sleppa líka öllum sprautum (nálafóbía anyone?). Þessi vinnudagur var sérstakur af því að þetta var lokadagur spretts í vinnunni og því “sýning”. Klukkan 4 fór ég snemma og keypti mér sundbuxur og sólarvörn, fór heim og fattaði að fötin hefðu ekki galdrast upp á snúru og þornað svo að ég setti þau öll á ofn. Pakkaði saman, og var kominn aftur í vinnuna klukkan 7. Þar var bjór í boði og ég fékk mér nokkra með von um að í þetta sinn gæti ég mögulega sofið í flugvélinni.
Við flugum um miðnættið og lentum klukkan 5 um morguninn. Ég gat ekkert sofið frekar en fyrri daginn og var þetta ótrúlega óþægileg flugvél. Sólinn kom upp meðan við vorum enn í passport control (sem er það hægasta sem ég hef nokkurs staðar séð!). Klukkan 7 fórum við í rútum á La Plage Rouge sem er 5 stjörnu resort í eyðimörkinni. Flestir reyndu að sofa sem fengu pláss í skugga enda var bakandi sól og hiti. Það voru ekki sólbekkir þarna, heldur sólrúm, með dýnum og alles. Heavy þægilegt! Þar að auki voru ókeypis nudd fyrir þá sem það vildu. Ég klúðraði málunum með því að geyma sundskýluna mína í ferðatöskunni, sem ég hélt að væri í rútunni fyrir utan, en rútan var farin á hótelið með töskurnar, svo að ég gat ekkert synt.
Ég er ekki mikið fyrir að liggja í sólinni og dreyf mig með fyrstu rútu niður í bæ á torgið (Djemma el Fna) klukkan 11. Þar sem biðu okkar guidar sem fóru með okkur inn í Souk-ana. Souk-arnir eru markaðir sem samanstanda af tilviljanakenndum götum með misflottum básum. Það fyrirfinnast líka búðir þarna, og er þeim lokað á nóttunni með flottum hurðum. Ég heyrði að skattur á húsin í gamla daga hafi farið eftir því hversu flott húsin væru svo að allir hafi byggt hreysi, en haft hurðirnar skrautlegar til að sýna hversu flott væri fyrir innan.
Á torginu eru slöngutemjarar og gamaldags vatnssalar sem rukka mann fyrir að taka myndir. Ég dróst aftur úr túrnum og fór að spjalla við vatnssölukallana. Ég vissi að það kostaði að taka ef þeim mynd svo að ég dró fram evru cent úr vasanum og spurði hvort þeir tæku svoleiðis gilt. Ekkert mál, taktu bara myndir! Ég tók nokkrar, þeir tóku svo mynd af mér með einn hattinn þeirra og svo kom að skuldadögum. Þá tóku þeir ekki evru centin og báðu um dirham (marokkóska gjaldmiðilinn). Ég var nýkominn úr hraðbankanum og átti ekkert minna en 100 (um 900 kr). Ég spurði hvort þeir gæfu til baka og þeir segja já auðvitað. Hikandi læt ég þá hafa hundrað kallinn. Þá vildu þeir fá einn á mann (þeir voru þrír). Ég hló bara og rétti fram hendina. Þeir vildu að ég tæki fleiri myndir til að vinna upp 100 kallinn. Ég stóð fastur á mínu og endaði á að fá 40 dirhams til baka. Úff hehe. Svona var allt þarna. Ef maður kann ekki að prútta getur maður alveg eins girt niður um sig, beygt sig fram og brosað.
Ég náði hópnum aftur og túrinn endaði í neðanjarðarmarkaði sem var rosalegur. Inngangurinn var í gengum hurðabúð (búð sem selur hurðir) og innst í henni voru tröppurnar niður. Þar voru um 8 búðir í hvelfingu, að selja allt frá úlfaldaleðurvörum til silfur vara og bronshesta í ½ raunstærð!
Ósofinn fór ég aftur á hótelið klukkan 1 og gat tékkað mig inn klukkan 3. Ég lagði mig í 3 tíma og þegar ég vaknaði vissi ég ekki í hvaða heimsálfu ég var! Fór svo á traditional veitingastað með Pete, Perlu, Andra og Ellen. Fékk mér Tajine með lambakjöti sem er svona þjóðarrétturinn þeirra og mjög góður. Eftir þetta var sötrað gin og tónik á hótelbarnum, sem hafði það eitt að markmiði að gera okkur gjaldþrota. Fór tiltölulega snemma að sofa, enda stór dagur á morgun! Duh duh duh duhhhh...

2 Comments:
nice!
Meiri sögur!
Frábærar myndir... Hvað komstu með marga hausa heim?
Skrifa ummæli
<< Home