Ekki hættur að blogga
Ég hef verið að reyna að vera virkari ljósmyndari undanfarið. Hef kynnst einum í vinnunni sem er mikill áhugamaður. Hann er virkilega fær og hefur kennt mér mikið. Það fyndna er að ég kannaðist við hann af netinu áður en ég kynntist honum hjá CCP. Hann er nefnilega 3D artistinn Ben Mathis, sem rekur síðuna PoopInMyMouth.com (Síðan kemur nafninu ekkert við :), sem er stútfull af tútoríölum fyrir byrjendur í leikja 3D.

Næsta rökrétta skref var að uppfæra Flickr aðganginn minn upp í pro, svo að nú eru engin takmörk á fjölda mappa, né stærð mynda sem ég get sett í þær. Síðan mín er hér, og myndirnar sem ég tók um páskana hér.
Ég keypti mér linsu á laugardag. 50mm og F 1/1.8. Mig vantaði einmitt "ljósnæma" linsu, þar sem hinar linsurnar sem ég á fyrir eru F 1/4.5 og F1/2.8. Ég ætlaði á Nesjavelli í góða veðrinu og prófa linsuna, svo að ég hóaði í Tomma og Kriz, sem voru þunnir frá kvöldinu áður og Boga, sem var enn fullur. Við komumst langleiðina eftir pípuveginum, sem var allur í sköflum, en festumst að lokum. Bogi á hrós skilið fyrir sinn þátt í að við losnuðum.

Annars er ég að reyna að halda mig við nýju linsuna. Maður lærir meira á því að vera með eina fasta lisnu, frekar en zoom linsu því að þá fer maður að hugsa miklu meira um skotin (frekar en að zooma bara inn og út eftir hentisemi). Ég mun setja myndirnar sem ég hef tekið á nýju linsuna á netið bráðum.

3 Comments:
Ég var á ímyndunarfylleríi, ekki þunnur ;)
Töff myndir. Hlakka til að sjá myndirnar úr ferðinni okkar, T.d. af vibbaTomma með Powerade.
"HVERT Í FJANDANUM ERUM VIÐ AÐ FARA!?! ERUM VIÐ RÉTT FYRIR UTAN SELFOSS?"
-heimild: Finnbogi Jónsson, 5. apríl 2008, í bíl á pípuveginum.
Já gefa Tomma smá kredit fyrir ímyndunarfylleríið. Það er ekkert grín að halda svoleiðis gangandi
Skrifa ummæli
<< Home