Atlanta
Skrifað klukkan 7 um morguninn á mánudegi:
Er á skrifstofunni í Atlanta. Flugum á laugardag frá Íslandi til Boston. Gekk furðu vel að koma öllu dótinu okkar í gegnum tollinn. Við erum með mikið af borðtölvum með okkur og geymdum þær í storm töskum sem eru fyrirferðamiklar og vekja mikla athygli. Það var merkilegt að lenda í Boston, því að það var önnur flugvél sem lenti samhliða okkur á flugbraut sem var svona 2-300m til vinstri við okkar. Ég hélt á tímabili að hún væri að fara að lenda á flugstöðinni. Mjög spes.
Í boston gistum við á Hilton flugvallarhótelinu sem var mjög fínt. Fékk mér steik um kvöldið (enda á dagpeningum :) og svo snemma að sofa á bostonskum tíma (seint á íslenskum tíma).
Flugum klukkan 10 daginn eftir til Atlanta. Ég sá hið umtalaða Stone Mountain úr lofti. Minnti mig dálítið á Uluru í Ástralíu, en samt ekki eins tilkomumikið. Allt er þakið þykkum skógi hérna og skera rafmagnslínur og vegir rákir milli bæja. Trén eru heldur engar hríslur, 20-30m há flest.
Við fórum beint af flugvellinum á skrifstofuna. Það tók við uppsetningin á öllu dótinu okkar. Sumt hafði farið illa í flutningnum og það var gert við eða skipt um. Tölvan mín er í fínu lagi, fyrir utan að hún vill ekki slökkva á sér, heldur endurræsir sig alltaf í staðinn. En hún hefur alltaf gert það svo að mér er nett sama.
Ég kíkti í Target búðina við hliðina á vinnunni. Hún er stór. Þarf að ná myndum af því einhvern daginn. Ég var svo svangur þarna inni að ég þurfti mikinn sjálfsaga til að kaupa ekki allt sem ég sá. Keypti samt Beef Jerky og Reese's Cups.
Þegar allt var nokkurn veginn komið í gott stand í vinnunni fórum við að huga að kvöldmat. Ætluðum á Outback stakehouse, en það var 1.5 tíma bið! Það var nefnilega Mother's Day, sem allir Kanar halda heilagann með því að bjóða mæðrum sínum og annarra út.
Fórum í staðinn á japanskan stað sem var frábær! Kokkurinn eldaði allt á pönnu fyrir framan okkur og gerði alls konar kúnstir eins og að búa til eldgos með niðurskornum lauk og olíu. Borðaði næstum því yfir mig af steik, humar og rækjum. Gott stuff.
Skrifað klukkan hálf tíu um kvöldið á mánudegi:
Fundir í allan dag. Ég mun vera í mjög töff hlutum hérna úti og er spenntur yfir því. Fórum á Outback áðan. Maður kemur aldrei svangur út af veitingastað í Bandaríkjunum! Fékk mér steik, aftur (when in Rome), og hún var mögnuð. Erum búnir að skipta um hótel af því að hitt var skítahola. Erum núna í labbfjarlægð frá hótelinu, en deilum herbergjum, sem ætti ekki að vera neitt mál. Sjáum til eftir 2 vikur!
Að lokum: Það er búið að skipuleggja atburði fyrir okkur: Næsta föstudag mun ég ganga nördaskrefið lengra en ég bjóst nokkru sinni við að ég myndi gera. Ég er að fara að larpa (live action role play) vampire kerfið með útgefendum kerfisins (enda er það fyrirtækið sem CCP keypti um árið). Og daginn eftir er bátsferð á vatni í nágrenninu og Jet Ski siglingar (Ekki sjóskíði eins og ég sagði einhverjum).
Þangað til er samt nóg að gera enda er þetta ekkert frí, og ég býst við að verða á skrifstofunni allan tímann sem ég er hérna.
Nóg í bili... aftur á Hótelið. Myndir seinna.

4 Comments:
Hahaha, ég vil fá myndir af þér að larpa!
Gaman a fylgjast með. Gangi þér vel!
Kveðja frá Svíþjóð.
P
Cool! Þá getum við farið að larpa saman þegar þú kemur heim. Dips á Legolas.
"allan tímann á skrifstofunni.." + "ad larpa.." = ad larpa á skrifstofunni = good times. Góda skemmtun í u.s. Kvedjur,
Skúli
Skrifa ummæli
<< Home