<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar/15962727?origin\x3dhttp://pallragnar.blogspot.com', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>
[LJÓSMYNDIR]
[ANIMATION] [BLÝANTUR]
[PRENTAÐ]
[UM MIG]
[LINKAR]
[BLOGG]
[PIXEL]
[3D]

mánudagur, maí 05, 2008

2008 - Ferðaárið mikla

Eins og alþóð veit var ég í Marokkó fyrir viku. Restin af ferðasögunni kemur bráðum. Ég er hins vegar að fara til Atlanta á laugardag með deildinni minni í vinnunni og verð þar í 2 vikur. Atlanta er í Georgíuríki, sem er einmitt suðurríki í Bandaríkjunum. Það sem ég var hins vegar að komast að er að skrifstofan er í hverfi sem heitir Stone Mountain, sem dregur nafn sitt af, tja steinfjalli sem er þar. Þetta fjall er raunar stærsti sýnilegi granítklumpur í heiminum. Í hlið klumpsins er minnismerki um baráttu suðurríkjanna í borgarastyrjöldinni. Þetta er skúlptúr af forseta suðurríkjasambandsins Jefferson Davis, og generálunum Robert E. Lee og Thomas J. "Stonewall" Jackson. Þessir herramenn börðust einmitt á móti frelsun þrælanna í borgarastyrjöldinni. Þess má geta að einn af "listamönnunum" sem vann að þessu var einnig viðriðinn Mount Rushmore.

Skúlptúrinn


Tengsl Ku Klux Klan við fjallið eru einnig mjög sterk og gaf eigandi fjallsins Klaninu leyfi til að nota parkinn fyrir krossabrennur og lautarferðir. Klanið fjármagnaði einnig skúlptúrinn að einhverju leiti. Árið 1975 hélt Klanið stóran fund, í boði eigandans, og brenndi 18 m háan kross. Ríkið ákvað í framhaldi að hrifsa til sín landið og banna svoleiðis lautarferðir. Engar krossabrennur hafa verið þar síðan og er staðurinn parkur í dag. Heimild.

Og svo er ég líka að fara til Japan (Tokyo) í ágúst með frábærum hóp fólks. Tala ábyggilega meira um það þegar nær dregur!

7 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Krossabrennur og lautarferðir. These two things really go hand in hand...

11:04 f.h.  
Blogger Sigmundur Korneliusson said...

Þarftu að mæta í vinnuna klæddur í hvítt lak?

P.S. Stupid fact: KKK is the largest donor to the "Adopt a highway" scheme

10:18 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Vá hvað þú ert kominn í frábært starf, ekkert nema ferðalög... öfund (o:

7:11 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Vó, ég held að þetta sé í fyrsta skipti sem ég hef séð broskall gerðan í þessa átt.

8:46 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já bara mjög hæfileikaríkt fólk sem getur gert broskall í nokkrar áttir (o: :-) (",)

6:57 e.h.  
Blogger Palli said...

KKK og broskallar fara greinilega vel saman!

Er á Atlanta skrifstofunni núna.

9:10 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

KKK is awesome

2:31 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home