Processing
Mig hefur lengi langað til að læra að nota Processing grafík pakkann fyrir Java. Það er mjög einfalt í notkun og einfaldar Java töluvert og takmarkið var að listamenn gætu notfært sér það. Ég rakst á þessa síðu í dag og var blown away með því sem gaurinn er að gera. Ég mæli sérstaklega með að skoða vídeóin og gömlu færslurnar á síðunni.

Dæmi um flott dót á síðunni gert með processing.
Þegar ég rakst fyrst á processing var það kallað proce55ing og grafíkin einskorðaðist við að teikna mikið magn pixla í tvívídd í Java. Eitthvað sem heillaði mig þá mikið. Núna virðist vera hægt að notast við OpenGL skipanir og gera magnaða 3D hluti ásamt hinum "gömlu möguleikum". Nú er bara að bæta því við listann að hlutum sem mig langar að gera (skrifa zombiemynd, gera old school adventure leik...).

1 Comments:
Skoðaði síðuna aðeins. Shit hvað þetta er töff dót.
Skrifa ummæli
<< Home