Dýralíf
Ætla að reyna að birta ekki bara Youtube vídeó eins og í síðustu færslum. Í þetta sinn þurfið þið að lesa. Jei!
Það er síki fyrir utan húsið sem er uppspretta alls lífs á svæðinu. Þegar hlýnaði í vor varð vatnið grænt og illa lyktandi. Í framahaldi af því komu flugur. Mig langar að kalla þetta moskítóflugur, en þetta eru bara mýflugur. Í milljónum. Og þegar ég hef opinn gluggann á kvöldin, vegna þess að það er svo heitt þá koma þær inn úr rigningunni. Í milljónum. Ok, allavega hundruðum. Þær hanga á loftinu og veggnum við hliðina á loftljósunum og suða í kór. Svo þegar ég fer að sofa, þá loka ég á milli herbergjanna svo að þær sæki ekki í lesljósið mitt. Daginn eftir eru þær hangandi á gardínunni, eltandi sólina, helmingurinn dauður en restin verður dauð um kvöldið. Þá er bara að hrista þær úr gardínunni, sópa þeim saman og henda út um gluggann. Rinse & repeat.
Þar sem eru flugur eru köngulær. Einn nágranninn minn segist ekkert notað svalirnar (sem hann er að borga 500DKr aukalega á mánuði) af því að það er svo mikið af köngulóm á þeim. Það er bara asnalegt. Annars sá ég svolítið merkilegt um daginn: Ég var að labba yfir brúna yfir síkið. Eins og venjulega skoða ég vefina á handriðinu í von um að sjá risaköngulærnar sem búa þar. Þá sá ég vespu flögrandi. Hún flaug eins og hún væri að leita að stað til að starta hreiðri. Hún flaug úr einum vef í annan þangað til að hún fann flugu. Þá greip hún hana og byrjaði að toga hana úr vefnum. Eftir mikið brölt tókst henni þetta og rændi flugunni úr vefnum og flaug burt! Ég gerði litla leit á Google áðan og fann ekkert um að vespur steli úr köngulóarvefum. Fáránlega töff!
Í sumar voru endur með andarunga á síkinu, og máfar. Helvítis máfar! Um leið og það byrjar að birta, klukkan 5 á nóttinni þá byrjar daglega fuglaorgían. Ég get ekki lýst þessu öðruvísi. Það er ekki hægt að lýsa þessum hljóðum með orðum en ég skal reyna: Þetta hljómar eins og allir máfarnir á svæðinu hópnauðgi öndunum og krákurnar séu klappstýrur. Ég vakna stundum, eftir að hafa verið að dreyma eitthvað fáránlegt, í svitabaði, en hef aldrei orku í að fara út sjá hvað sé að gerast. Þetta er líka versti tími morgunsins, þegar það er ógeðslega bjart inni hjá mér.
Einu fuglarnir sem fara ekki taugarnar á mér eru svölurnar. Þær fljúga ca. 5 cm yfir vatninu og veiða flugur. Þetta eru ekkert smá fim kvikindi! Taka 90° beygjur á staðnum nánast. Þær veiða líka köngulær úr vefunum. Þarf að ná vídeói af þessu við tækifæri.
Núna að allt öðru. Það eru að byrja þættir á www.g4tv.com sem heita Code Monkeys og ég er mjög spenntur fyrir þeim. Þetta er teiknimyndasería sem fjallar um tölvuleikjafyrirtæki í árdaga tölvuleikjanna og er með pixelgrafík. Mjög súrt stöff.
Það bíða allir eftir GTAIV (aka GTA4) eins og annarri komu Krists. Núna færð ÞÚ tækifæri til að vera í leiknum. Með því að hringja í (hægrisinnaða, íhaldssama) útvarpsstöð sem verður í leiknum og segja þeim hvað sé að þér, Ameríku eða heiminum, gætir þú endað í leiknum.
Að lokum: Tékkið á sápukúlunni okkar á síðunni hans Tomma!

7 Comments:
Það er greinilegt að enginn annar hefur gefið sér tíma til að lesa færsluna. Þú ert greinilega ekki nógu vinsæll til að komast upp með skrifaðar færslur. Múhahaha
Mjög flott sápukúla! Hrikalega svalt að sjá transparent kúluna. Alveg eins og raunveruleg!
Sammála Hersteini, mjög flott sápukúla.
Kúlan er flott eins og ég kommentaði hjá Tomma. Svo er ég alveg að fíla Code Monkeys þættina. Er búinn að horfa á fyrstu tvo og þeir voru bara nokkuð næs. Skemmtileg reference í gamla leiki og þannig. Svo er þessi þáttur alveg fyrir þig. Pixelgrafík um tölvuleikjafyrirtæki og með frekar sick húmor... Fáránlega sweet.
DL-aðir þú þáttunum eða fannstu þetta á netinu (HTTP)?
DL-aði í gegnum torrent á torrentspy.com þar sem ég næ í mitt helsta torrentashit.
Ps. I'm hungry for shit.
pps. hata word verification draslið. Oft hægt að lesa hluti á fleiri en einn veg...
KRiZ: já þú getur lesið á fleiri en einn hátt...
IF YOU'RE HIGH!
Annars ætti ég kannski að checka á Code Monkeys. mmm... monkeys.
P.s. Palli, eruð þið ekki búnir að skila?
Skrifa ummæli
<< Home