<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar/15962727?origin\x3dhttp://pallragnar.blogspot.com', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>
[LJÓSMYNDIR]
[ANIMATION] [BLÝANTUR]
[PRENTAÐ]
[UM MIG]
[LINKAR]
[BLOGG]
[PIXEL]
[3D]

fimmtudagur, ágúst 23, 2007

Er að koma heim á morgun!

Nú á ég meira sameiginlegt með Holyfield en heillandi persónuleikann. Ég var nefnilega bitinn í eyrað í gær. Það er löng saga (og víst frekar leiðinleg af viðbrögðum að dæma), en í stuttu máli þá var ég að þvælast úti í rigningunni í gærkvöldi og ég var umsetinn af blóðsugum. Er með tvö moskítóbit á hausnum (þar af eitt á eyranu) og þrjú á hægri löppinni. Hvað var ég að gera úti í rigningunni? Þetta spurði mig einmitt öryggisvörður frá DR og ég spurði sjálfan mig svo að því í framhaldinu.

Ég fékk þá hugmynd að fara út og taka nætur myndir eftir að það stytti upp um ellefuleitið í gær. Eftir að hafa þurft að fara heim tvisvar út af gleymdum hlutum og fleira (leiðinlegi hluti sögunnar sem verður sleppt hér) þá lenti ég í rosalegri dembu skammt frá húsinu mínu. Ég leitaði skjóls undir glerskyggninu hjá DR og ákvað að stilla upp myndavélinni þar, enda aldrei að vita hvenær myndi stytta upp. Ég stóð hinsvegar við hlið eina opna gluggans á jarðhæð, sem var mjög grunsamlegt þegar öryggisvörðurinn kom að mér með þrífótinn. Hann gerði samt ekkert veður úr því (get it?), en ég ákvað að hundskast aftur út í dembuna.



Næst leitaði ég skjóls undir Metro lestarteinunum. Og nei, metróinn er ekki neðanjarðar á þessum kafla. Þar náði ég ágætum myndum. Hér er metróinn að keyra fyrir ofan mig:



Hér er annað sjónarhorn, án lestar.




Restin af myndunum eru á Flickr heimasíðunni minni. Tékkið á henni. Flickr er snilld, ég mæli með því!

Að lokum er svo mynd tekin um seinustu helgi. Það vildi svo til að það var raftónlistarhátíð í hverfinu mínu helgina sem við Tommi vorum að undirbúa vörnina. Þeir tóku undir sig heimilið mitt (á mynd), skólann minn og DR byen (í næsta húsi). Þeir komu upp svaka ljóskastara í miðju kollegíinu.



P.s. ég kem heim á morgun (24.) og verð til 3ja sept! Vúhú!

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Flickr er snilld, þar til að þú þarft fleiri möppur en 3.. þá fara þeir að rukka þig. Ekki gott mál. En ef maður er tilbúin að borga þá er það svosem lítið mál. Hefurðu prófað Picasa (google) myndvefinn?

9:14 f.h.  
Blogger Palli said...

nei, er eitthvað varið í hann?

Ég verð þá bara með allt í einni möppu (ég er svo nískur:)

5:26 e.h.  
Blogger Thor said...

Frábærar myndir.

Er þetta tekið með Lomo líka?

7:26 e.h.  
Blogger Palli said...

Nei þetta er tekið á Fuji digital myndavélina mína. Annars er ég kominn með nýja geggjaða myndavél. Blogga um hana seinna!

9:57 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home