Af kampavíni og andlitshárum
Skiluðum á Miðvikudag! Fórum svo til Håvards og spiluðum Xbox og Ps3. Við vorum búnir að ákveða að skála í kampavíni í tilefninu svo að ég keypti ódýrasta "kampavínið" sem Irma bauð upp á. Næstódýrasta kostaði 68 dkr flaskan og mér fannst það allt of dýrt (svona er maður orðinn vanur verðlaginu) en svo fann ég það ódýrasta: 3 stk á 100 dkr. Ég var svo líka með ódýran hausverk daginn eftir.

Vörnin er 20sta, en ég hef meira að hugsa um þangað til. Ég þarf að skila einu litlu verkefi 13. ágúst, sem ég tek svo próf úr þann 16. Þetta eitt af fáum "design" verkefnum sem ég mun gera. Allt hingað til hefur verið "implementation" eða forritun. Ég mun porta borði úr Super Mario Brothers 1 inn í source vélina og athuga viðbrögð spilara við breytingum á sjónarhorni og stýringu. Ætti að vera skemmtilegt.
Annars hef ég ekkert sagt frá fyrirtækinu og er það af vilja gert. Það er allt að mjakast áfram. Ég mun láta vita þegar eitthvað gerist.
Ég hef búið í skólanum undanfarið, og hef þar af leiðandi ekkert sést á kollegíinu þar sem ég bý. Ég hef ekki rakað mig í háa herrans tíð, svo að ég er kominn með ágætis útigangsmannaskegg og þegar ég loksins kíkti inn í eldhús í gær var nokkrum brugðið. Þarf að raka mig bráðlega.
Að lokum: Þið getið nálgast forritið okkar hér ásamt leiðbeiningum og ritgerðinni (ef ykkur leiðist).
EDIT Það þarf að kópera bæði exe fælinn og msi fælinn í sama directory áður en exe fællinn er keyrpur. Þarfnast shader language 3 skjákorts (yngra en 2 ára u.þ.b.).

6 Comments:
Verkefnið virkar kúl fyrir utan að þetta virðist vera viðhorfsverkefni... en töff hlutinn er auðvitað portið!
Your search - viðhorfsverkefni - did not match any documents.
"...og athuga viðbrögð spilara við breytingum á sjónarhorni og stýringu."
fine!
Skoðaði að gamni síðuna þína og sá athyglisvert orð: Myndeindamyndir. Prófaði að googla það og til hamingju, þú ert sá eini sem ert með þetta orð!
hehe. þarf samt að taka þessa síðu niður. bara gamalt drasl þarna.
Palli, það er ekki nema 3ja tíma ferð frá Köben til Gauta. Spurning um gott flipp þann 21.? Pældu í því.
Skrifa ummæli
<< Home