<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar/15962727?origin\x3dhttp://pallragnar.blogspot.com', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>
[LJÓSMYNDIR]
[ANIMATION] [BLÝANTUR]
[PRENTAÐ]
[UM MIG]
[LINKAR]
[BLOGG]
[PIXEL]
[3D]

miðvikudagur, ágúst 15, 2007

Lomo Kompact

Jæja ég fékk Lomo myndavélina sem ég pantaði mér fyrir rúmri viku. Þetta er raunar ekki upprunaleg Lomo LC-A, heldur LOMO LC-A+, búin til af Lomographic Society félaginu. Hún kom raunar á föstudaginn var, sem var óheppilegt, þar sem ég var lokaður inni á skrifstofu alla helgina við að klára Mario. En núna er ég búinn að taka 3 filmur með henni og sú fyrsta er í framköllun. Hlakka til að sjá útkomuna.

Um myndavélina. Þetta er "old school" filmumyndavél, endurgerð af sovéskri Lomo LC-A, sem var "no frills" myndavél hönnuð fyrir almúgann. Þessi sem ég á var gerð í Kína, en er með Rússneska Minitar 1 linsu, eins og sú upprunalega, þannig að útkoman á að vera sú sama og með þeirri gömlu.



Myndirnar sem Lomo tekur eru soldið spes. Linsan er ekki sú besta og eru því dökkna myndirnar á köntunum og blörrast jafnvel líka. Að auki er myndavélin með óútreiknanlegan ljósnema sem stjórnar ljósopstímanum. Þetta veldur því að myndir verða oft með háum kontrast og litirnir magnast upp (af einhverjum orsökum).


Týpísk Lomo mynd


Það eru tveir hlutir sem ég fíla geðveikt við hana: Númer eitt er þegar maður opnar ljósopið og viewfinderinn. Get ekki lýst því almennilega, en það er mjög speisað. Hitt er filmustillirinn. Þegar maður breytir frá t.d. 100 til 400 ASA filmu þá snýr maður litlu hjóli. Það snýr svo skífu með misstórum götum sem renna yfir ljósnemann. Þeim mun ljósgleypnari sem filman er þeim mun stærra er gatið fyrir framan ljósnemann og þar af leiðandi er ljósopinu haldið opnu styttra. Genius!

Lomography félagið hefur kynnt þessar myndavélar stíft frá falli Sovétríkjanna og gerðu díl við Lomo fyrirtækið um að vera einu dreifingaraðilar myndavélarinnar utan fyrrum sovétríkjanna. Lomo hætti svo framleiðslu á LC-A myndavélinni 2005. 2006 kom út LC-A+, framleidd í Kína. Hún er með nokkrum auka fítusum, og ódýrari en uppgerð sovésk vél. Þar að auki er hún með 2ja ára ábyrgð.

Munurinn á vélunum: Gamla vélin er með takka til að stilla ljósopsstærðina handvirkt (hvað hef ég að gera við svoleiðis?). Nýja vélin getur tekið multiple exposure (töff). Nýja er með glugga tilað sjá hvernig filma er í henni. Gamla er ekki með glugga og því engin leið að vita hvort filma sé í henni. Nýja getur notað filmur upp í 1600 ASA. Nýja er með skrúfgang til að nota framlengingu á takkanum.

Ég er ekkert allt of hrifinn af þessu Lomographic Society. Bæklingarnir sem fylgja eru svo tilgerðarlegir og fáránlegir. "Þetta er ekki myndavél heldur lífsstíll ... blabla". En ef myndirnar koma vel út er mér alveg sama.

Á morgun er prófið mitt fyrir Mario dótið. Hlakka ekki til. Þetta er lang sísta verkefnið sem ég hef skilað við þennan skóla að mínu mati. Vona bara að ég geti bullað mig í gegnum prófið. Þið getið sjálf dæmt því að það er hægt að finna moddið hér. Þarfnast löglegrar útgáfu af Half Life 2. Leiðbeiningarnar eru á ensku af því að ég er latur.

Svo næ ég í fyrstu myndirnar í framköllun eftir prófið. Skanna einhverjar inn og set þær á netið ef það er þess virði. Well back to work!

p.s. Keypti líka Lomo Super sampler:

sem tekur svona myndir (hef samt ekkert prófað hana):

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ljósneminn er alls ekki svo óútreiknanlegur. Ljósopið helst opið meðan ljósneminn safnar upp nægu magni.

Þannig getur myndin tekið mislangan tíma ef þú hreyfir hana t.d. á meðan tökunni stendur.

Litirnir og kontrast stýrast meira af filmunum og oft er mælt með high contrast, high saturation filmum fyrir lomo.

11:12 f.h.  
Blogger Guðný Ella said...

Töff

4:00 e.h.  
Blogger Palli said...

Já ég ætlaði einmitt að koma því að að þú ættir original Lomo myndavél, Hersteinn. Annars er supersamplerinn vægast sagt mjög cheap framleiðsla. Lítur út eins og einnota myndavél sem hægt er að skipta um filmu í. Hann er svo ekki með neinum viewfinder!

11:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já mín gamla fékk að kenna á því.

Kemur í ljós að Lomo þolir ekki að vera negld í barborð af fullu afli...

En snilldin var samt að það losnaði bara einhver brú í PCB brettinu í henni sem gæti verið hægt að laga með lóðvír. Rússnesk smíð, rússnesk gæði!

1:13 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home