Það er búið að vera mjög heitt og rakt upp á síðkastið hér í köben. Þetta hefur valdið þrumuveðri á nóttunni. Ég gat ekki sofið um daginn svo að ég náði í myndavélina og reyndi að ná myndum. Það gekk ekki, því að ég var ekki með þrífót, og eldingarnar komu með mínútu millibili, og ekki hægt að spá fyrir þeim. Náði samt vídeóinu hér að ofan, og er núna orðinn hluti af youtube pakkinu. Fékk einmitt þessi skemmtilegu skilaboð skömmu eftir að logga mig inn:

4 Comments:
Myndbandið fyrir neðan minnti mig á þennan sketch.
http://www.youtube.com/watch?v=Sls8Hb1MAxg&mode=related&search=
Já sorry að þú þyrftir að komast að þessu svona að þú átt enga vini. Ég og Tommi vorum einmitt að tala um hvernig við ættum að tilkynna þér það.
Það er allt í lagi, ég skil ykkur alveg.
Mjög flott!
Skrifa ummæli
<< Home