<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar/15962727?origin\x3dhttp://pallragnar.blogspot.com', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>
[LJÓSMYNDIR]
[ANIMATION] [BLÝANTUR]
[PRENTAÐ]
[UM MIG]
[LINKAR]
[BLOGG]
[PIXEL]
[3D]

mánudagur, apríl 30, 2007

Það er nú það

Tommi átti afmæli á sunnudaginn og ég, hann og Ragnhildur fórum niður á Amagerbrogade og fengum okkur kaffi. Þar hittum við Stebba og Rut sem voru úti að labba með Úlfi, syninum þeirra. Stebbi bauð okkur að kíkja í körfu með Adda og fleirum og við vorum mjög hressir með það, enda langt síðan við höfum farið í körfu.

Eftir 7 mínútur eða svo sneri ég á mér vinstri ökklann, frekar illa :( En ekki svakalega illa samt. Get haltrað um. Við vorum náttúrulega ekkert búnir að hita upp eða neitt og ég í alröngum skóm fyrir körfubolta. Maður myndi halda að ég vissi betur.



Annars er soldið að frétta af fyrirtækinu. Við erum með svona díl við ITU um að auglýsa hvort annað, og þeir eru aldeilis að standa sig. Þeir hafa boðið okkur heilan vegg og standborð á Nordic Game 2007 sem er samnorræn ráðstefna um tölvuleiki. Við sóttum um styrk frá þeim og styrkveitingarnar eru einmitt á þessarri ráðstefnu. Það væri gaman að fá hann en ég tel ekkert svakalega miklar líkur á því samt. Við erum 3 stofnendur, en getur skólinn getur bara reddað tveimur miðum á ráðstefnuna (þeir kosta 200 euro) svo að ég skráði mig sem sjálfboðaliði á hátíðinni. Hef ekki hugmynd hvað það þýðir, en vonandi er eitthvað backstage goodness. Kannski. Annars verðum við þrír þarna og munum skiptast á að vera sjálfboðaliðar og að standa við básinn.

Svo er Metro Express að koma og taka viðtal við okkur á miðvikudaginn. Það er fríblað sem er dreift á öllum lestarstövunum og er frekar mikið lesið. Svaka stuð.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Það er classic að snúa á sér öklann þegar maður er í illa reimuðum(eða ekki reimuðum) lágum skóm. Það er bara ávísun á svona pakka.
Damn, mig langar í körfu.
Sjálfboðavinna segirðu, athyglisvert að sjá hvað það felur í sér.

11:30 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home