Algjör snilld
Ég rakst á þessa síðu í dag. Ég skemmti mér vel við að lesa þetta blogg og var viss um að einhver væri að þykjast vera svo rosalegur repúblikani til þess að sýna hvað þeir væru klikkaðir. En vá! ég er ekki svo viss lengur. Ég held að honum sé alvara. Hann talar um allt frá frelsun Íraks til fóstureyðinga. Úff, það sem byrjaði sem skemmtileg lesing varð fljótt að hatursáróðri og heilaþvætti. Ég vona að þetta sé djók.
Quote:
"Look at this wonderful baby-boy! He might solve the problems of the future, who knows, maybe he’ll be a 2nd Jesus! Evil scientists will to cut him up for sick experiments! When did science become so evil?"
Meira fyndið: Gaur að útskýra að bananar sanna tilvist guðs. Það sem hann fattar ekki er að bananinn hefur verið ræktaður af manninum í mjög langan tíma. Af hverju skoðar hann ekki villta banana?
Don´t get them started on peanut butter! Þetta myndband gerir mig geðveikt pirraðann. Fáránleg rök.
Ég er annars að lesa The blind Watchmaker eftir Richard Dawkins þar sem hann er að fara í gegnum gagnrökin á móti kenningum Darwins.
Að lokum skemmtilegt blogg sem ég skoða daglega: cynical-c.com
4 Comments:
Hey ef ég héti Dawkins þá myndi ég líka skrifa bók þar serm gagnrökum er beitt á móti kenningum Darwins
Actually, hann telur upp gagnrökin og sýnir hvað þau eru vitlaus. Hann er mikill talsmaður Darwinisma.
Hey ef ég væri með Downs-heilkenni myndi ég líka skrifa bók þar sem gagnrökum er beitt á móti kenningum Darwins
Þetta eru mjög fyndnir gaurar... að fólk geti trúað þessu.
Annars er ég líka að lesa bók eftir Dawkins: The GOD DELUSION.
merkileg lesning
Skrifa ummæli
<< Home