<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar/15962727?origin\x3dhttp://pallragnar.blogspot.com', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>
[LJÓSMYNDIR]
[ANIMATION] [BLÝANTUR]
[PRENTAÐ]
[UM MIG]
[LINKAR]
[BLOGG]
[PIXEL]
[3D]

laugardagur, maí 26, 2007

Bakken

Ég og Ragnhildur skelltum okkur í Bakken skömmu áður en hún fór heim. Það er mjög furðulegur staður, þar sem fullir kallar ráfa um öskrandi á fólk og fjölskyldur koma með börnin sín. Svo er þetta líka hangout staður fyrir unglingana sem búa þarna. Þessi staður er eins og fastur í níunda áratugnum, hvað varðar airbrush listina á veggjunum. Það sem er mest freaky eru .. tja ég veit ekki alveg hvað þetta heitir. Brúður? Skúlptúrar? Auglýsingastyttur? Lítum á myndir:


Fyrst er auglýsing fyrir "fish´n chips". Vá hvað þetta er krípí fiskur sem kemur upp úr frönskunum með kokkahúfu! Fiskurinn þeirra hefur verið ferskur síðan 1956.


Næst eru sálarlausir álfar/dvergar með lugtir. Þeir standa eins og vörð um nokkra steina. Ábyggilega satanískur fórnarstaður. Þeir líta út fyrir að drekka blóðið úr þeim sem voga sér of nálægt.


Þessi gaur sneri hausnum hægt og rólega til beggja hliða. Hann gat samt ekki hreyft handleggina því að þeir eru boltaðir fastir við staurana, ásamt löppunum. Hvað heitir þessi svipur? Lítur út eins gaur sem er einni sekúndu frá því að æla.


Þessi gaur hefur byrst í draumunum mínum af og til síðan ég sá hann.

Kíkjum næst á auglýsingaskilti:


Tannlaus gömul kona vinnur helling af gullpeningum í gufuknúnum spilakassa. Það stendur raunar hókus pókus á honum, þannig að hann gæti verið galdraknúinn. Á myndinni má líka sjá rottu (sem býr í kassanum) dauðadrukkinn mann liggjandi á gólfinu og hálfnakinn gaur hangandi á rólu í loftinu. Neðst stendur svo "vinderen". Það er ekki það fyrsta sem manni dettur í hug samt.


Oscars Bøf Bar. Ok, hvað er í gangi hérna? Strákurinn vinstra meginn er að gráta, og stelpan (?) hægra megin er eins og hausinn hafi verið slitinn af henni. AH! uhm!
Einhver hefur buffað þessi börn.


Hvar annars staðar er hægt að fara í fimmvíddarbíó sem bíður upp á Pandavision?


Það ætti helst að skoða allar myndirnar með dúndrandi Ibiza tónlist í eyrunum. Annars mæli ég mikið með þessum stað.. einhvers staðar verður white trash að vera.

6 Comments:

Blogger T said...

Ég fór þarna á föstudaginn með m&p.

Það eina sem ég tók eftir var mega creepy gluggagaurinn. Freaks me the fuck out.

11:11 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hahahahaha

1:40 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Shit já, það er fullt af ógeði þarna. Zombie fiskurinn finnst mér geðveikt fyndinn. Michael Jackson hlæjandi er mjög krípí og svo finnst mér geðveikt fyndið að gráta við að borða borgara...

4:29 e.h.  
Blogger Balur said...

Hahaha, djöfull er þetta allt vangefið creepy!

10:23 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

ég held að hann sé að gráta út af lauknum í buffinu :P

Ég hef farið í bakken margoft en ég hef aldrei pælt í þessum styttum/myndum áður. Þetta er ansi creepy :D

11:38 f.h.  
Blogger Jói Ben said...

Þetta er of fyndið.

1:44 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home