Matador!
Ég pantaði mér dáldið merkilegan mat um daginn. Ímyndið ykkur pizzu með pizzasósu, osti og lauk, setjið svo steik í miðjuna og bernaise sósu yfir allt. Þá hafði þið ímyndað ykkur Matador.
Síðasta föstudag (fyrir viku) prófaði ég Guitar hero í fyrsta skipti. Mjög skemmtilegur leikur, soldið eins og singstar, nema með vansköpuðum plastgítar. Þegar maður fær nóg af stigum þarf maður að halla honum upp og spila þannig, geðsveikt rokkað. Þetta var heima hjá Håvard, og við spiluðum líka PES6 og drukkum bjór.
Á laugardaginn fór ég á tískusýningu með Ragnhildi. Hún er nefnilega að vinna með einu módelinu í sýningunni. Arkitektastofan er í sama húsi og fatahönnuðurinn, svo hann hefur verið gripinn á ganginum eða eitthvað. Við biðum í hátt í klukkutíma í röð í nístingskulda (fáránlega kalt!) og komumst svo inn á Store Vega. Þar var svingband að spila, allir málaðir svartir í framan, og ég hélt fyrst að þeir væru með skopstælingu á blackface minstrels, en svo kom í ljós að þetta var eitthvað þema í sýningunni.

Dæmi um blackface minstrels
Sýningin sjálf var geðveikt weird. Það var búið að setja gulan gerfisnjó á gólfið sem leit út eins og rifinn ostur. Upp úr honum stóðu svo svartar gulrætur. Það var kór sem söng spooky tonlist, einn óperusöngvari og tveir trommarar með risatrommur. Af því að þetta var á store vega breyttist þetta í djamm og við komum heim um þrjúleitið.
Þá var partý í eldhúsingu sem var a verða búið. Nýjasti íbúinn, hann Davide frá Ítalíu var búinn að bjóða 100 manns í partý í sameiginlega eldhúsinu okkar án þess að biðja nokkurn um leyfi! Hann hafði raunar hengt upp A4 blað á tilkinningatöflu í eldhúsinu, en samt.. Hann bauð öllum í dönskunáminu sínu og hvatti þá til að taka vini sína með. Þegar við komum var hann víst svo freðinn að það var ekki hægt að tala við hann. Sem betur fór voru 2 af ganginum sem pössuðu upp á þetta allt saman svo að þetta fór vel. Enda mætti bara helmingurinn af fólkinu, um 50 manns.
Svo fékk ég bréf frá nágrönnum mínum DR í dag. Þeir vilja að ég sendi þeim upplýsingar um Media tæki sem ég er með á heimilinu. Þeir vilja nefnilega innheimta Medialicens gald sem er 1070 dkr fyrir hálft ár. Tæki sem falla undir skilgreininguna eru sjónvörp, GSM símar og tölvur. Bah!! Veit ekki alveg hverju ég ætla að svara. Maður býr nú á kollegí og það er ólíklegt að maður sé ekki með nein af þessum tækjum.

Keypti mér Stars and Stripes cola í nettó um daginn. Vá hvað ég fékk mikla nostalgíu. Þetta er ICE Cola!! Þið munið þetta sem var í plastdósunum. Vá.

2 Comments:
Ég sá algjöra andstæðu við fyrri myndina í gær:
http://www.pantherhouse.com/newshelton/we-give-a-shit-about-having-fun/
Haha! Þegar ég var á Kampsax þá var hringt á milli kökkena og fólki bent á að licens fólk væri á svæðinu og enginn mætti opna fyrir þeim. Ég kom að þeim einu sinni fram í anddyri á kökkeninu mínu og það er frekar vandræðalegt að opna ekki fyrir manneskju sem bankar á hurðina meter frá manni! En það borgaði sig hreinlega ekki... En þá snerist það um sjónvörp ekki ipoda og xbox! Gefðu bara skít í þá. Ertu ekki útlendur sem skilur ekki dönsku annars... ;)
Skrifa ummæli
<< Home