Ég er á Íslandi!
Vúhú! En ég fer aftur til DK á páskadag (8unda), þannig að ef þið viljið hittast og jafnvel taka eins og einn PES6 leik á xboxinn þá sláið á þráðinn (824 7277).
Hef ekki bloggað lengi. Við vorum með svaka törn í félaginu. Peningamenn verða víst að sjá eitthvað til að skilja hvað maður talar um svo að við útbjuggum lítið vídeó til að sýna hugsanlegum fjárfesturum. Þetta er ekki nógu fancy til að sýna öllum heiminum svo að ég er ekki að fara að birta neitt á næstunni (en ef þú átt peninga...)
Já ég er á landinu. Er aleinn í foreldrahúsum þar sem foreldrar eru á Gvatemala og Ragnhildur er á Kúbu. Ættarnafnið hennar er einmitt Castró[1].

Það má samt segja að ég sé líka í miðameríku af því að ég keypti mér stórgóðan leik í London sem gerist í ímynduðu smáríki þar sem herinn ræður öllu og lögreglan er spillt. Leikurinn er samt gullfallegur og alveg svakalegt að hoppa upp í þyrlu eða flugvél og fljúga um HEILT LAND. Leikurinn lítur út eins og Oblivion, bara án Loading skjásins sem kom alltaf á 100 metra fresti.

Hann spilar soldið eins og GTA nema maður er aðallega í frumskógi að hjálpa Górillum[2] til að steypa forsetanum af stóli. Svo fer GTA4 að koma :D
Ég fór með Ragnhildi í helgarferð til London. Fórum út 16. og komum til baka 19. síðasta mánaðar. Það var stuð, við fórum í dýragarðinn, á tveggja hæða túristarútu og á Lion King í leikhúsi. Svo var mikið rölt um bæinn og parkana nálægt hótelinu okkar. Veðrið var raunar ekkert frábært, og það snjóaði meðan við vorum í dýragarðinum. Mörgæsirnar dönsuðu a gleði[3] en tígrisdýrin fóru í skjól.
[1] Þetta er lygi
[2] Guerillas
[3] Önnur lygi

7 Comments:
Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.

Einn heima segirðu...hvenær er partýið?
vildi bara biðja að heilsa, þegar allir eru lentir. Bið að heilsa Tomassi og Ragnhildó þegar þau koma. Annars vil ég þakka fyrir mig og segja að gaman var að hitta þig. Annars leyfðu mér að heyra í þér öðru hverju, og láttu mig vita ef það er EITTHVAÐ sem ég get gert fyrir þig eða ykkur. Hafið það gott. SK
Takk SK. Ég veit ekki alveg hver þetta er samt. Eini SK sem ég þekki er Simmi, en þú skrifar ekki eins og hann. Hver er þetta?
vá ég fór á Lion King fyrir 4 árum og þeir eru enn að sýna það, góður söngleikur samt (o;
Jæja knúsaðu Röggu töggu frá mér þegar hún kemur frá Kúbu,
Kveðja úr Gautaborg,
Alla
will do!
Skrifa ummæli
<< Home