Tiltektir
Ég bý í kjallaranum hjá M&P eftir að ég kom heim. Fasteignaverð er fáránlegt og maður þarf að spara fyrir íbúð. Ég tók yfir gamla herbergið hans Hersteins og mun það verða að (skrif)stofunni minni, en gamla herbergið svefnherbergið mitt.
Til þess að eiga pláss í geymslunni fyrir draslið hans Hersteins þurfti að taka til í geymslunni okkar. Það endaði með því að 2 stútfullar bílferðir í Sorpu voru farnar og það er svakaleg breyting á geymslunni okkar. Maður var að henda hlutum eins og stílabókum úr MR og HÍ, og var stundum gaman að skoða þær. Mikið krotað á spássíur (ekki samt spásíur) og oft komment um hvað viðkomandi tími hafi verið leiðinlegur. Mjög mikilvægt að teikna sem mest til að skemmta manni við próflesturinn!
Herbergið hans Hersteins (eða stofan mín eins og það heitir núna) var full af dóti frá mér, Hersteini og mömmu og eftir 3 helgarsession af tiltekt er það aðeins líkara því sem ég vil. Ætla að gera það kósí með sófa og koma fyrir góðu sjónvarpi þegar ég á meiri pening. Annars var mikið af gömlum leikjum sem fundust og það væri gaman að spila nokkra þeirra aftur, en ég hugsa að ég ætti bara muna eftir þeim með nostalgíu í staðinn. Þið kannist við það að horfa á mynd úr barnæskunni sem var góð en er ömurleg þegar þú sérð hana í dag (Howard the Duck, anyone?).
Ég rakst líka á myndaalbúm og framkallaðar myndir. Það er leiðinlegt að digital myndir enda alltaf bara í einhverri möppu á harðadisknum og enginn fær að sjá þær. Vinur minn í Danmörku velur alltaf úr bestu myndirnar úr ferðalögum og prentar þær á pappír, eins og old-school myndir. Maður ætti náttúrelga að gera svoleiðis. Annars á ég helling af myndum sem ég þarf að koma í albúm. Myndir af Hróarskeldu og Lomo myndirnar sem ég hef tekið.
Talandi um myndir. Hér er svakalegt myndaalbúm frá The Los Angeles Herald Express frá árunum 1936-1961. Þetta eru tabloid ljósmyndir og mikilvægt að lesa textann undir þeim til að skilja hvað er í gangi. Ekki gleyma að fletta.

Old school Photoshop!

3 Comments:
Ein spurning: Palli á klakanum, er það skírskotun í Kalla á þakinu?
Mér finnst þessi old school photoshop mynd vera craaazy töff. Það gæti samt verið að flesh eating virus sé byrjaður að hakka sig í gegnum andlitið á fremri konunni.
Haha góður Jói!
Skrifa ummæli
<< Home