<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar/15962727?origin\x3dhttp://pallragnar.blogspot.com', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>
[LJÓSMYNDIR]
[ANIMATION] [BLÝANTUR]
[PRENTAÐ]
[UM MIG]
[LINKAR]
[BLOGG]
[PIXEL]
[3D]

mánudagur, desember 10, 2007

Stelpuleikir

Eins og flestir sem hafa verslað við Amazon.com fæ ég oft bréf með tilboðum. Ég renni stundum í gegnum leikjalistann og skoða verðin, en panta samt aldrei nett. Áðan rak ég augun í leikinn "Imagine babies" og þurfti að vita aðeins meira. Þetta er Nintendo DS leikur um barnapössun, stílaður á stelpur. Í listanum "Customers Who Bought This Item Also Bought" voru leikir eins og Imagine Fasion Designer, Imagine Pet Vet, Happy Cooking, Fashion Designer (önnur týpa) og Dolfin Island.



Manufacturer's Description
Embody a young student who visits her grandmother's house for the summer. Your grandmother leaves to go on holiday and leaves you in charge of her house. During her absence you will have to maintain the house and even decorate it to your taste. In order to do this you will need to earn money by taking care of all your neighbour's babies, where you will find your vocation--babysitting!

Semsagt, þú spilar sem námsmaður (stelpunámsmaður (stelpumaður?)) sem fer að heimsækja hús ömmu sinnar. Amman sjálf flýr burt og skilur þig eina eftir. Þú ákveður að innrétta húsið, en vantar pening. Þá uppgötvar þú tilgang lífs þíns, að passa börn. Af hverju einu sinni að hafa söguþráð? Af hverju ekki bara að hafa texta í byrjuninni sem stendur. You are a girl. Girls like babies. Get to it!

Ok, ég veit að litlir strákar og stelpur hafa mismunandi smekk, en af einhverri ástæðu finnst mér alltaf asnalegt þegar það koma út leikir stílaðir sérstaklega á stelpur. Ubisoft forstóri: "Það virðist vera að stelpur spili ekki tölvuleiki, hvað getum við gert til að græða á þessum hóp?" Markaðsstjóri: "Hmm, stelpur fíla barnapössun, fatahönnun, að elda mat, dýr og þá sérstaklega höfrunga!". Forstjóri:"Frábært, við verðum ríkir. Ríkir! Hahahaha!"

Ég man fyrir svona 15 árum að einu leikirnir sem voru til fyrir stelpur voru einhverjir Barbie leikir með sviðuðum þemum. Mér sýnist að þessir leikir hafi ekki virkað svakalega vel þá heldur. Ætli þessir (augljóslega hannaðir peninganna vegna) leikir hafi ekki bara þveröfug áhrif á stelpur. Þær fá einhverja ömurlega drasl leiki og hugsa: "Leikir eru asnalegir. Hver fílar höfrunga? Komm on!".

P.s. rakst á þetta skemmtilega quote hér:
Space isn't remote at all. It's only an hour's drive away if your car could go straight upwards.
- Fred Hoyle

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ubisoft gerir einmitt Assassin´s Creed. Ég er bara að bíða eftir því að höfrungarnir komi og ég þurfi að passa börn.

Fíla annars quote-ið. Good one.

12:21 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

"People are just like slinkies, they have no real purpose but its fun to roll them downstairs"

8:59 f.h.  
Blogger Palli said...

Hehe.

10:58 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home