<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar/15962727?origin\x3dhttp://pallragnar.blogspot.com', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>
[LJÓSMYNDIR]
[ANIMATION] [BLÝANTUR]
[PRENTAÐ]
[UM MIG]
[LINKAR]
[BLOGG]
[PIXEL]
[3D]

sunnudagur, október 14, 2007

Löglegt?

Lögreglan ruddist inn í herbergið mitt áðan. Án þess að banka kom (vopnuð) lögreglukona inn í herbergið mitt með vasaljós á lofti. Ég var með gest og var það eina ástæðan að hurðin var ólæst, annars er hún alltaf læst, þó að ég sé heima. Fólk á það til að ruglast á hurðum og svona.

Þegar ég elti hana fram á ganginn til að fá að vita hvað væri að gerast braust hún inn í herbergi nágranna míns sem var ekki heima (og virðist ekki læsa hurðinni) og rannsakaði herbergið hans. Ég spurði hana hvað var að gerast og hún svaraði mér ekki heldur strunsaði í burtu niður ganginn. Þar sá ég að u.þ.b. 5 aðrir lögreglumenn voru í sömu erindagjörðum.

Nú var mér frekar brugðið. Ég spurði einn þeirra hvað væri að gerast. Hann svaraði að þeir væru að leita að manni. Ég spurði hvort að ég ætti að vera hræddur en hann svaraði mér ekki. Aðrir íbúar gangsins voru að safnast saman og reyna að átta sig á því hvað væri að gerast.

Ég ákvað að ná í myndavélina mína til að skjalfesta að þetta væri í raun að gerast. Á leiðinni til baka sá ég að konan hafði ekki einu sinni lokað á eftir sér hjá nágranna mínum! Ég lokaði hurðinni fyrir hana. Þegar ég kom svo með myndavélina sagði annar nágranni minn mér að ég mætti ábyggilega ekki taka myndir af þeim. Ég þóttist nokkuð viss um að ég mætti taka myndir af óboðnum gestum í mínu eigin húsi, og ég var til í að taka áhættuna. Þá voru lögregluþjónarnir á leiðinni út um hinn enda gangsins og ég náði engri mynd, því miður.

Ég er ekki sérfræðingur í dönskum lögum, en ég er nokkuð viss um að lögreglan má ekki koma inn í húsnæði fólks án leyfis frá húsráðenda eða dómsvaldinu. Hvað þá að leita í húsi fólks.

Það kom svo á daginn að þeir höfðu verið að leita að einhverjum gaur hafði lamið annan gaur á barnum nokkrum mínútum áður, en þessi gaur var vinur annars nágranna míns.

Ég er ekki mikill fylgismaður fasistalögreglunnar í Köben fyrir, en þetta er fáránlegt. Ég veit ekki hvort þeir séu með sitt eigið patriot act hérna en undanfarið hefur svolítið verið talað um það hvað lögreglan býr sér til lög þegar hún þarf þau (og kemst upp með það).

Ég fór svo á barinn (á Októberfest) með vini mínum og fékk mér tvo bjóra. Eins og alltaf áður er þessi bar frekar sad. Algjör kjötmarkaður fyrir drukkna námsmenn.

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Crazy shit! Svona lagað fer einmitt geðveikt í taugarnar á mér.
Bloggaðu svo eitthvað um förina til Bretlands og atvinnuleitina.

9:20 f.h.  
Blogger Unknown said...

Fjárinn! Ég er hálf feginn að hafa ekki orðið fyrir þessari gribbu þegar ég var þarna!

Reyndar er löggan hérna heima heldur ekki með lögin á hreinu mv. það sem ég hef orðið vitni að...

12:11 e.h.  
Blogger Sigmundur Korneliusson said...

Það er ekki fræðilegur möguleiki að þeir megi ryðjast inn í herbergi án leyfis eiganda. Samkvæmt lögum hérna í UK (sem voru útskýrðar í leigusamningnum) þá má lögreglan fá leyfi hjá eiganda hússins (háskólans) til að leita á sameigninni en verða að fá leyfi íbúa til að leita á herbergjunum (eða fá leitarheimild). Þetta hljómar bara eins og að DK sé orðið eitthvað fasistaríki. Fínt að þú sért að forða þér úr landi

5:25 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Shæse! Mér finnst þetta ferlega óhuggulegt *hrollur*

Takk fyrir jútúb kisumyndina, svona lagað bræðir mig alltaf :)

8:47 e.h.  
Blogger Balur said...

Bíddu vó, síðan hvenær er "kjötmarkaður fyrir drukkna námsmenn" sad?!?

4:33 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home