Is that you, bowl of cherries?
Mér verður hent út úr herberginu mínu á miðvikudaginn. Á föstudag er svo útskrift sem ég hlakka mikið til. Kannski seinasta skiptið sem ég hitti marga af samnemendum mínum. Fleiri en einn hefur boðist til að hýsa mig fram yfir útskrift svo að það er ágætt. Ég flýg svo með Ryan Air frá Malmö á mánudeginum eftir það. Þá lýkur Danmerkurkaflanum.
Ég seldi sófann í fyrradag. Nú er bara svarthol þar sem hann var. Í orðum The Dude: "It really tied the room together, did it not?". Þarf að losa mig við restina af dótinu líka.
Fór á mánudag í IKEA og keypti flutningakassa og er að troða í þá núna. Þegar allt er komið í kassa þarf ég að þrífa íbúðina.
Ég ætla að mæla með 2 hlutum: Portal og Jesus Christ Vampire Hunter.
Portal er leikur gerður af Valve (Þeim sem gerðu Half Life 2). Í þessum litla leik spilar þú sem mennskt tilraunadýr á rannsóknarstofu. Verið er að kanna hvort þú getir leyst þrautir með hjálp portal tólsins. Þetta tól býr til ormagöng milli tveggja staða og eru þrautirnar vel hannaðar og margar hverjar svínslega erfiðar. Tölvurödd hvetur þig áfram með loforð um köku við enda þrautarinnar. Leikurinn er með frábærum þrautum og portölin gefa manni alveg nýja sýn á rýmið sem maður er í.
Leikurinn er fullur af húmor og vélræna röddin er mjög skemmtileg. Það versta við hann er hvað hann er stuttur. Kláraðist í einni atrennu, en það er raunar hægt að spila sum borðin aftur í erfiðari útgáfum.
Jesus Christ Vampire Hunter er kanadísk mynd gerð í anda Lloid Kaufman og Troma fyrirtækisins. Þessi mynd er illa leikin, illa tekin, fáránlegt handrit, ömurleg bardaga atriði, vel talsett og geðveikt skemmtileg! Tékkið á henni (ef þið fílið "Kung-Fu Action / Comedy / Horror / Musical about the second coming").
quote:"We're running short on skin. We'll need to harvest more lesbians."

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home