<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar/15962727?origin\x3dhttp://pallragnar.blogspot.com', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>
[LJÓSMYNDIR]
[ANIMATION] [BLÝANTUR]
[PRENTAÐ]
[UM MIG]
[LINKAR]
[BLOGG]
[PIXEL]
[3D]

mánudagur, júní 11, 2007

Hiti

Það er heitt í dag. Heyrði einhvers staðar að þetta sé heitasti dagur ársins til þessa og töluna 29 gráður heyrði ég líka. Skuggalega mikil sól (get it?) og fáránlega heitt! En ég er samt að spá í einu. Eigum við að hafa áhyggjur af Global Warming (tm)? Ég er alls ekki að halda því fram að jörðin sé ekki að hitna, en það sem ég vil vita er hvort það sé ekki bara eðlileg þróun. Það er vitað að jörðin hefur hitnað og kólnað til skiptis, og að hitastigsmælingar hófust á svokallaðri litlu ísöld.

Komið er fram við fólk sem mótmælir Al Gore eins og það sé að haldi því fram að helförin hafi ekki átt sér stað, en málið er að margir veðurfræðingar eru ósammála rökunum í myndinni hans og segja að hann fari rangt með gögnin sín. Hann byggir rökin á tölvulíkani sem er ekki nógu fullkomið til að segja til um framtíðina. Það tekur ekki aukningu rakastigs til greina þegar það spáir um 5 gráðu hitaaukningu. Auk þess á Al Gore að hafa tífaldað vatnsyfirborðs hækkunina við pólabráðnunina. Málið sé að þegar hitinn hækkar svona svakalega gufar mun meiri sjór upp og úrkoma eykst, líka á pólunum, og ísinn endurnýjast.

Svo heyrði ég líka að Kyoto sáttmálinn sé byggður á rannsóknum þar sem vísindamönnunum voru gefnar niðurstöðurnar fyrirfram. Niðurstöðurnar hafi átt að vera svo rosalegar að það átti að knýja þjóðir til að vera með. Vandamálið sé samt að þessi lausn sé svo fjárhagslega óhagkvæm að ef að fjármagninu væri varið í malaríulyf eða eyðnilyf myndi það bjarga mun meiri mannslífum. Ef að þær þjóðir sem hafa skráð sig gera breytingarnar sem þarf (sem er mjög ólíklegt) þá minnkar co2 mengunin bara 5%. Eins og er, eru bara Svíþjóð og Írland sem standast Kyoto staðalinn.

Er Global Warming bara hræðsluáróður eða á maður að hafa áhyggjur?

Allar þessar staðreyndir eru gripnar héðan og þaðan af netinu á síðustu vikum og stundum með öðru eyranu. En maður á ekki alltaf að treysta í blindni heldur skoða allar hliðar málsins.

að lokum þetta.

EDIT





Hér eru tvær heimildarmyndir sem sýna hina hlið Global Warming. Súr fyrri heitir Global Warming - Doomsday Called Off, en sú seinni heitir The Great Global Warming Swindle og er frá BBC.

GW-DCO part1 part2 part3 part4 part5

TGGWS part1 part2 part3 part4 part5 part6 part7 part8

12 Comments:

Blogger Thor said...

Svakalegt hvað internet áróður Bush stjórnarinnar, Alcoa risans og olíufurstanna getur verið öflugur í heilaþvotti!

9:06 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

The ends justify the means.
Þetta var einmitt mottóið í South Park þætti sem ég horfði á í dag sem gekk út á hræðsluáróður. Það var þegar "future-Kyle" kom aftur í tímann og var junkie...

9:08 e.h.  
Blogger Palli said...

Hvaða nornabrenna er þetta Bjarni? Hefur þú skoðað málið frá báðum hliðum eða ert þú heilaþveginn af óskarsverðlaunahafanum Al Gore?

8:53 f.h.  
Blogger T said...

RACEWAR!!!!!

12:58 e.h.  
Blogger Guðný Ella said...

má hlæja að "þessu" eftir svona veraldlega bloggfærslu? Eða gera bara kjánar svoleiðis?

1:14 e.h.  
Blogger Thor said...

Hey! Maðurinn sem fann upp internetið, getur ekki haft rangt fyrir sér.

2:31 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Auðvitað hefur plánetan gengið í gegnum hitastigsbreytingar og þvílíkar hamfarir af náttúrulegum orsökum, en spurningin sem margir vísindamenn spyrja sig (og ég) er allt í lagi að við flýtum fyrir hlýnun jarðar og framköllum á nokkrum öldum það sem annars tekur e.t.v. milljónir ára að gerast á eðlilegan hátt? Ég hugsa að það geti verið slæmt. Það eru líka sannanir fyrir að nú þegar er þessi hækkun hitastigs og aukin mengun farin að hafa bein áhrif á lífríki jarðar. Ekki spurning um hvort, heldur hversu mikið. Það eru til öfgar í báðar áttir, og báðir deiluaðilar hafa eitthvað til síns máls, en ég segi: "better safe than sorry" fyrir minn smekk.

3:08 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

typpi!
tíhíhíhí

12:29 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Það er kona í Noregi sem heitir Tussa

12:36 e.h.  
Blogger Thor said...

Af hverju er alltaf verið að tala um global warming?

Global polluting er stærsta vandamálið, hvort sem það er útblástur eða rusl.

9:15 e.h.  
Blogger Palli said...

jebbs

1:02 e.h.  
Blogger Unknown said...

Sammála Skúla, vandamálið er ekki endilega að jörðin er að hitna heldur að hún er að hitna ALLT OF HRATT, lífríki jarðarinnar (humans included) getur ekki brugðist nógur hratt við breytingunum, þar að leiðir; fjöldadauði tegunda.

Ég las skemmtilega grein í National Geographic um þá algjörlega röngu hugmynd um að vísindasamfélagið sé ekki sammála um hættuleg áhrif hlýnunar jarðar en það skilar sér ekki alltaf í fréttaflutningi. N.G. athugaði hversu hátt hlutfall af vísindagreinu byrtar í virtum vínsindablöðum töldu að áhrif hlýnunar jarðar væri slæm, hlutfalið var um 95%. Næst athuguðu þeir sama hluttfall í fréttagreinum í helstu dagblöðum BNA og þar var hlutfalið um 50%, ekki mikið samræmi þar!

9:09 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home