<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar/15962727?origin\x3dhttp://pallragnar.blogspot.com', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>
[LJÓSMYNDIR]
[ANIMATION] [BLÝANTUR]
[PRENTAÐ]
[UM MIG]
[LINKAR]
[BLOGG]
[PIXEL]
[3D]

sunnudagur, apríl 02, 2006

Worst idea ever!


Þegar Hersteinn bróðir minn kláraði námið sitt hér í Köben, skildi hann eftir hjólið sitt svo að ég gæti notað það. Þar sem hann átti heima í Lyngby u.þ.b. 8 km fyrir norðan þar sem ég bý náði ég ekki í það meðan veðrið var gott seinasta haust. Svo kom vetur og ég hefði hvort eð er ekki getað verið á því. Það hefur hlýnað frekar mikið undanfarið svo að ég og Tommi ákváum um daginn að ná í hjólin okkar nú um helgina. Hans hjól var einmitt líka uppi í Lyngby.
Tommi fór út í búð og þegar hann kom aftur spurði ég hann hvernig veðrið væri. Hann sagði að það væri ágætt. Við ákváðum að skella okkur og ná í gripina. Ég hringi í Svein, sem hafði lofað að klippa á lásinn á hjólinu því að Herteinn hafði ekki skilið eftir lykil. Meðan við vorum að gera okkur tilbúna til að fara bölvar Tommi því að hann sé ekki með hanska. Ég segi við hann að það þurfi varla hanska, nema það komi rigning eða eitthvað. Hann ákveður samt að taka einn sokk með sér. Hann væri hvort eð er búinn að týna hinum og hann gæti notað hann í neiðartilfelli. Hehe.
Á leiðinni út á strætóstöð byrjar að rigna. Þegar við komum út úr strætó er rigningin ansi mikil. Við förum til Svein og hann bíður okkur upp á kaffi. Hann notar forrit sem hann skrifaði til að finna stystu hjólaleiðina fyrir okkur og klippir svo á lásinn með slípirokk.
Hjólið hefur ekki verið notað í marga mánuði og það sem kom mér mest á óvart var hversu skítugt það var. Ennþá er hellidemba. Tommi bendir mér á að það eru engin bretti á því. Crap! Ég fatta líka að buxurnar sem ég er í henta einstaklega illa til hjólreiða. Jæja of seint að hætta við núna. Ég enda á að bretta hægri klaufina oní sokkinn minn.

Hér er listi yfir það sem var að hljólinu:
- Engin bretti
- Afturhjólið er beyglað svo að það er ekki hægt að hafa bremsurnar tengdar.
- Hægri pedalinn er brotinn og skakkur.
- Sætið og stýrið fast í kappakstursstillingu. Sætið hátt uppi og stýrið geðveikt lágt,
- Loftlaus dekk.
- Fáránlega skítugt.

Við komum við á bensínstöð þar sem Tommi kaupir vinnuhanska til að nota sem venjulega hanska og við dælum í dekkin. Ég þigg sokkinn hans Tomma og set hann á hægri hendina þar sem gat hvort eð er ekki bremsað þeim megin. Við tók 50 mínútna akstur í rigningu. Worst idea ever!

Annars fórum við Tommi og Baldur á fredagsbarinn í skólanum mínum á föstudag. Mikið drukkið og spilað fuβball. Ég kenni Ópal og Tópas um. Skemmtum okkur á leiðinni heim með House of Cosbys quotum.

Á laugardaginn horfðum við Tommi á Brokeback Mountain. Urðum fyrir vonbrigðum, en bjuggumst samt ekki við neinu. Ég átti gott quote samt: "Oh sure, it´s all fun and games until someone gets a dick up their ass."

Tölvan mín er að láta illa. Maxinn gefur mér licensing error sem ég get ekki fixað og þar af leiðandi ekki unnið heima í Gladiator leiknum. Það þýðir semsagt samviskubitslaust frí frá leiknum eina helgi. Hef samt nóg annað að gera, vúhú. Installaði nýju vírusvarnarforriti sem fann 2 vírusa og henti. Vonandi lagast tölvan við það. Langar samt til að enduruppsetja hana.

-

P.s. "Hah! April fools Dwayne Wayne! I´m not hungry at all, you see. I´m Cosby 85. April fools Cosby."

P.p.s. Takk fyrir hjólið Hersteinn. Það verður komið í gott stand innan tíðar :D

9 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Þetta er eitthvað svo geðveikt dæmigerð hjóla-ná-í-saga... Skemmtileg sidestory með sokkinn.

9:31 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Af bash.org:

who> i can't watch brokeback mountain for the same reason i can't watch horror movies
who> i would scream "HE'S RIGHT BEHIND YOU!!!" in the middle of the theater

10:04 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég veit ... hjólið er ofursvalt! Of svalt til þess að nokkrum manni myndi dirfast að stela því. (Mundu samt eftir að læsa því!)

Var samt ekki bara þægilegt að hjóla? Sértilgerður hnakkurinn er stilltur þannig að engin nauðsynleg tól verða fyrir blóðskorti og stýrið strekkir vel úr bakinu ;)

10:34 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Mjög gott brokeback comment...

12:42 e.h.  
Blogger Palli said...

Hehe góður Dagur! Annars mun ég stilla hjólið þannig að það sé þægilegt að sitja á því, Hersteinn. Vissiru að hnakkurinn þinn sogar í sig vatn og geymir það eins og kameldýr?

10:15 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég gerði mér grein fyrir því. Þetta er samt snilldarhnakkur!

10:45 f.h.  
Blogger Jói Ben said...

Samt huggun harmi gegn, að hjólið var í kappakstursstillingu. Annars hefðuð þið örugglega verið miklu lengur á leiðinni.

1:24 e.h.  
Blogger T said...

Þetta forrit var asskoti sniðugt.

2:14 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hahaha. Návæmnlega.

10:31 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home