<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar/15962727?origin\x3dhttp://pallragnar.blogspot.com', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>
[LJÓSMYNDIR]
[ANIMATION] [BLÝANTUR]
[PRENTAÐ]
[UM MIG]
[LINKAR]
[BLOGG]
[PIXEL]
[3D]

mánudagur, mars 13, 2006

Helgin

Helgin mín byrjaði eiginlega á fimmtudag. Eftir tíma í skólanum var fyrirlestur frá tveimur gaurum frá Sony sem unnu við að gera leikinn 24 eftir sjónvarpsþáttunum frægu. Annar gaurinn var einn af tveimur 3D gaurunum en hinn var einhvers konar verkefnisstjóri held ég.

Þó að leikurinn hafi ekki fengið neitt frábæra dóma voru þeir vissir um að þetta væri besti leikurinn sem þeir gætu hafa gert. Þeir svöruðu svo spurningum frá okkur og ég spurði meir að segja einnar spurningar.

Eftir fyrirlesturinn tilkynntu nokkrir úr 16 vikna verkefninu mér að þeir væru að fara á tónleika með Kaiser Chiefs og hvöttu mig til að gá hvort það væru enn til miðar. Ég dreif mig á netið, keypti miða, prentaði hann út og fór á tónleikana. En fyrst fórum við á nálæga krá.

Flestir tónleikagestirnir voru svona 17 ára held ég. Maður hafði allavega ekki mikið fyrir því að sjá á sviðið. Það voru tvö upphitunarbönd. Fyrra bandið hét The Chalets og þau voru geðveikt góð. Tvær söngkonur á hljómborði og svo 3 gaurar á gítar, bassa og trommur. Þau voru frá Dublin.


The Chalets



Á eftir þeim komu We are scientists. Þeir voru ekki eins góðir. Aðal vandamálið var að þeir spiluðu rosalega hátt. Kerfið var botnað þegar þeir byrjuðu og svo spiluðu þeir frekar dæmigert bandarískt háskólarokk.

Seinast komu Höfðingjarnir. Þeir rokkuðu ansi feitt.

Kaiser Chiefs


Við kíktum svo á aðra krá og ég kom svo heim klukkan 2 um nóttina. Á föstudaginn vaknaði ég nokkuð þreyttur og kvefaður. (Þess má geta að ég hef ekki fundið lykt í þrjár vikur af kvefi). Eftir heilan dag af AI for game development kíkti ég á fredagsbarinn í skólanum. Þangað komu Baldur og Tommi og svo fórum við niður í bæ að hitta Jóa Ben á Pilegarden.

Á laugardaginn fór ég með Peder norðmanni í heimsókn í heimahús þar sem eldað var fyrir okkur og spilaður var póker. Ég reyndi að fitta í hópinn og fá mér viskí en gafst svo upp og fór í bjórinn sem ég hafði tekið með. Rólegt kvöld og mjög fínt, en aðeins of mikið af vandræðalegum þögnum.

Sunnudagskvöld vorum við Tommi boðnir á Hereford með Geir frænda hans, sem er í opinberri heimsókn hér. Steikin var rosalega góð og kvöldið mjög skemmtilegt. Haha ég er að namedroppa.

8 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Nice namedropping there... Hljómar eins og sweet steik..

8:21 f.h.  
Blogger T said...

Steikin var góð. Hereford er snilld. Mæli með því fyrir aðdáendur kjöts.

10:25 f.h.  
Blogger Björk said...

biddu hittiru ekki lika mig a Pile?!!!

12:35 e.h.  
Blogger Björk said...

haha foru thid med geir a herreford, gat hann ekki tekid drottninguna med lika:)

12:36 e.h.  
Blogger Palli said...

Jújú ég hitti þig líka á Pile. Ég hitti líka Arngrím, Gunna B og einhverja fleiri. (Meira namedropping)

2:23 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Róóóólegur á namedroppinginu...

10:18 e.h.  
Blogger Balur said...

Róóóólegur á því að vera öfundsjúkur bara því þú vast ekki namedroppaður!

4:42 e.h.  
Blogger Palli said...

Róóóólegir drengir!

9:16 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home