Arnold í Source
Ég er að taka stórt verkefni með 5 öðrum strákum í staðinn fyrir hefðbundinn kúrs. Verkefnið varir í 16 vikur og á þeim tíma ætlum við að gera fjölspilara bardagaleik í þriðjupersónu í Source. Source er nafnið á leikjavélinni sem var notuð til að gera Half Life 2 og Counterstrike Source (og ábyggilega fleiri leiki). Ég var að dunda mér við að módela kall fyrir leikinn áðan og tók allt í einu eftir að gaurinn er drullulíkur Arnold Swarzenegger. Alveg óvart. Jæja ég er farinn að sofa.
2 Comments:
Glæsilegt! Værirðu samt til í að hafa Tomma sem endakall... eitthvert fetish í mér að sjá Arnold lúskra á gríðarlegum karlmönnum.
ooooohhh... i like!
Skrifa ummæli
<< Home