<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar/15962727?origin\x3dhttp://pallragnar.blogspot.com', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>
[LJÓSMYNDIR]
[ANIMATION] [BLÝANTUR]
[PRENTAÐ]
[UM MIG]
[LINKAR]
[BLOGG]
[PIXEL]
[3D]

mánudagur, janúar 30, 2006

Old School

Munið þið eftir gömlu Adventure leikjunum? Space Quest, Police Quest, Kings Quest, Quest for Glory, Larry [1], Maniac Mansion, Day of the Tentacle, Sam and Max, Monkey Island, Zak McKracken, Dig, Full Throttle [2], Beneath a Steel Sky, Flight of the Amazon Queen o.s.fr. Þetta voru allt snilldarleikir.
Sierra byrjaði með Quest leikina og svo tók Lucasarts við og fullkomnaði formúluna. Í fyrstu leikjunum var auðvelt að deyja eða eyðileggja fyrir manni leikinn (Æ tókstu ekki hamarinn í fyrsta herberginu? Þú þarft að nota hann í lokaþrautinni, too bad!). Lucasarts gerði Leikina þannig að það var ekki hægt að tapa (nema þú gæfist upp) og bættu húmor inn í. Maður gat spilað þá dögum saman, og maður gat verið fastur í leik dögum saman því að það var ekki hægt að tékka á lausninni á netinu. Leikjafyrirtækin græddu helling á símtölum frá fólki sem vantaði vísbendingar í leikjum.
En hvað gerðist? Þú finnur ekki sambærilega leiki í verslunum í dag. Þeir hurfu um það bil sem þrívíddarkort urðu vinsæl. Lucasarts reyndi fyrir sér með því að gera "hálf þrívíddarleiki" þ.e. karakterarnir eru í þrívídd en bakgrunnurinn prerendered [3]. Monkey Island 4 og Grim Fandango voru svoleiðis og báðir mjög fínir. Raunar er Grim Fandango með flottustu tónlist í tölvuleik sem ég hef nokkurn tíma heyrt. Þessir leikir byggðu á útsjónarsemi og góðum söguþræði. Þeir gengu út á að safna allskonar dóti og nota það svo á sniðugan hátt.
En það er ekki öll von úti enn! Það er öflug underground hreyfing sem býr til furðu góða og professional leiki í bílskúrnum heima hjá sér [4]. Það eru til allskonar tól á netinu til að hjálpa til við að gera leikina og er AGS eitt þeirra. Ég hef því ákveðið að gera leik sjálfur. Hann verður með 320x200 grafík og 256 litum (eins og þeir gömlu). Ég er kominn með hugmynd að söguþræði og er byrjaður að læra á AGS. Hér er svo hugmynd að söguhetjunni, sem ég teiknaði í gær:



[1] Allt Sierra leikir
[2] Allt Lucasarts leikir
[3] Bakgrunnurinn er mynd sem fengin er úr þrívíddarforriti, og því ekki interactive.
[4] Bílskúr er sveigjanlegt hugtak.

EDIT: Ekki búinn með walkcycle-ið ennþá. Það vantar hettuna á peysuna, vinstri höndina og svo þarf ég að fínstilla þetta meira. Sýni þetta samt.

15 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hlakka til að prófa leikinn, hannn verður eflaust góður!

4:34 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Viltu ekki bara segja beint út að þú ætlir að hafa sjálfan þig sem söguhetjuna? Kallinn er annars smooth (ég myndi vilja hafa rendurnar á vinstri skónum aftar... það bara fer eitthvað í taugarnar á mér...). Djöfull er ég samt ánægður með þetta framtak hjá þér. Hljómar mjög töff!

6:15 e.h.  
Blogger Palli said...

Takk kristján ég fixa skóna! Annars var ég bara að fikta með stílinn sem ég ætlaði að hafa í leiknum, og kallinn endaði alveg eins og ég. Það er bara töff. Ég er annars að vinna í "walkcycle" fyrir hann. Set hann á síðuna þegar hann er tilbúinn

8:18 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

ahhh, kúl! Hlakkar til að sjá walkcycle. Ég vona að þú setjir líka moonwalkcycle. Það væri töff! Þá geturðu sleppt því að animate-a þegar hann snýr sér við. -Best idea ever!

12:25 f.h.  
Blogger Palli said...

Var að bæta við hreyfimyndinni.

1:14 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

'Ogeðslega kúl!

2:28 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ógeð töff og allt það. En ekki gleyma Larry 2; QFG 2-4; Space Quest 2-3; King's Quest 2-4 og fleirum. Svo voru "gömlu" leikirnir vitaskuld ekki í 256 lita VGA grafík. Þetta voru 16 lita EGA leikir allt fram til 1989 amk. Yes yes. En mjög töff sum sé.

12:05 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Fín hreyfimynd. Eins og þú segir er þetta eitthvað skrítið. Það er eins og hann haltri eitthvað...

5:53 e.h.  
Blogger T said...

Buxurnar lengjast á síðasta rammanum. og hausinn færist niður.

2:05 f.h.  
Blogger Palli said...

Já Tommi takk fyrir að benda á buxurnar. Hausinn er eitt af því sem ég þarf að fínpússa.
Mummi, ég ákvað að nefna ekki sequels en það þýðir áð ég hafi gleymt þeim. Ananrs spilaði ég Sapce quest 1&2, police quest 1&2 og Kings quest með CGA grafík á grænum skjá! Beat that.

p.s. svo var Zork ekki einu sinni með grafík. Hvað þá Leather Goddesses of Phobos. (Já það er alvöru leikur)

1:00 f.h.  
Blogger T said...

Voru þær úr leðri eða klæddu þær sig í leður?

10:10 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Snilld hvað hann er líkur þér! Ég sé fyrir mér langa röð af Palli's Quest :)

ps. þetta er ótrúleg tilviljun en ég var að selja réttindin að Palli's Quest II: The Nerd

1:11 e.h.  
Blogger Palli said...

Hahaha! But seriously, þetta er ekki ég ;)

2:44 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Það eru í rauninni aðallega stuttbuxurnar sem eru aaaalgjörlega þú. Svo er hárgreiðslan og skeggið dáldið líkt og hjá þér...

8:22 e.h.  
Blogger T said...

Og skórnir. Face it Palli, þetta ert þú.

10:44 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home