Leikir
Ég keypti mér Call of Duty 4 í þar seinustu viku. Hann kom svo í seinustu viku (9 Gb download), og ég kláraði single player campaignið í gær. Ég verð að segja, að þetta var helvíti góður leikur bara. Sérstaklega voru allar byssurnar vel gerðar og gaman að skjóta af þeim. Það er einmitt mjög skemmtilegt við þennan leik að maður getur skotið gegnum þunna veggi og klárað heilt herbergi af óvinum með smá útsjónarsemi.
Tölvan mín (sem er eins árs) var ekki alveg að höndla hann eins og mig langaði að spila hann og ég þurfti að minnka upplausina soldið til að fá hann til að keyra rétt. Það var eitt sem böggaði mig geðveikt meðan að ég spilaði hann að grasið var alltaf svo dökkt, miðað við jörðina undir. Leikurinn nýtir sér birtu kontrast mikið til að gera flott andrúmsloft, svo að ég hélt að þetta ætti að vera svona. Datt svo í hug að downloada nýjum driverum fyrir skjákortið, og viti menn! Leikurinn batnaði til muna, spilaði betur og grasið og fleiri hlutir urðu mun töffaðri. Þvílík noob mistök að vera ekki með nýjustu driverana! Ætli ég verði ekki bara að spila hann aftur (hann er hvort eð er of stuttur).
Annars held ég að Zero Punctuation geti frætt ykkur mun betur um leikinn en ég:
Zero punctuation er uppáhalds leikjarýnirinn minn. Á um 4 mínútum hakkar hann leiki í sig á mjög skemmtilegan hátt, og eins og nafnið bendir til talar hann viðstöðulaust.
Annar leikur sem ég sló til og keypti á föstudag er Guitar Hero III fyrir Xboxinn. Ég tók hann svo með til Dags á föstudag og við hittumst þar nokkur með bjór og spiluðum (sumir lengur en aðrir). Á laugardag fór ég svo á efnafræðisýningu í Háskólabíó, þar sem sýnt var hellingur af flottu dóti (mikið af sprengingum og reyk). Kvöldið fór svo í Guitar Hero chill hjá Kriz, með Jóa ben. Svo mikið guitar hero var spilað að ég var marinn á hægri framhandleggnum daginn eftir (ég veit ekki heldur hvernig það gerist). Aftur getur ZP greint betur frá leiknum en ég:
Annað: Ég er Keypti mér bíl (meira seinna) og er byrjaður að æfa hnefaleika.

1 Comments:
Þetta eru frábær review! Maður á bara næstum í erfiðleikum að ná að grípa þetta allt. Good shit.
Skrifa ummæli
<< Home