13 er ekki óhappatala í danmörku
Átti góð jól og áramót, sem sést kannski á bloggleysi. Magnaðasta gjöfin var frá Ragnhildi, ekki meira né minna en digital smásjá, tengd með USB. Ótrúlega kúl græja.

Kom svo aftur út til danmerkur 3. jan og fór í próf 5. jan. Öll prófin mín eru munnleg, og maður fær að vita einkunnina nokkrum mínútum eftir að maður er búinn. Fyrsta prófið var Multimedia programming. Ég fékk 13 á danska skalanum. Nokkuð sáttur!
Næsta próf er Game programming. Það verður fróðlegt að sjá hvað þeir segja um leikinn okkar. Áherslan átti að vera á uppbygginguna og kóðann, ekki á grafík og skemmtun. Áherslan okkar var einmitt húmor, stuð, grafík og hljóð!
Annars sá ég mús um daginn. ég var að koma úr lestarstöðinni heima og sá eitthvað skjótast bak við göturafmagnskassa. Þar stóð hún og var alveg gæf. Ég komst í meter fjarlægð frá henni og vildi að ég hefði haft myndavélina með mér. Ég hef samt ekki séð rottur á lestarteinunum hérna eins og ég sá reglulega í Stokkhólmi.

3 Comments:
Bloggbloggblogg, gaman.
Sé þig um Páskana!
Þessum myndum náði Kristinn, sem var í DTU í fyrra, af mús sem var inni í einni tölvubyggingunni (minnir að það hafi verið byg 303).
http://www.hi.is/~kfp/myndir/dtu_myndir0003.AVI
Æji, Jói er svo mikil mús... músímúsímús!
Skrifa ummæli
<< Home