<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar/15962727?origin\x3dhttp://pallragnar.blogspot.com', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>
[LJÓSMYNDIR]
[ANIMATION] [BLÝANTUR]
[PRENTAÐ]
[UM MIG]
[LINKAR]
[BLOGG]
[PIXEL]
[3D]

laugardagur, nóvember 26, 2005

Faroe Fun Fun






Leikurinn er búinn!! Og.. Hann.. Er.. Awesome! Við skiluðum honum inn klukkan 3 í dag. Við héldum að við værum búnir klukkan tvö í nótt og fengum okkur einn julebryg til að fagna. Boy were we wrong. Við komumst að því að eftir 3ja mínútna spil byrjaði massífur minnisleki. Maður gat séð minnisnotkunina stighækka í task manager! klukkan 6 vorum við búnir að laga það og þá var ekkert eftir nema skýrslan. Arg! Það er ekki auðvelt að skrifa góðan texta þegar maður er ósofinn og vil ég þakka villuletinni í word fyrir góða frammistöðu.
Ef þið viljið prófa leikinn hann verðið þið að downloada Panda og keyra þetta með Python. Annars skuluð þið skoðað myndbandið hér fyrir neðan. Ég fullvissa ykkur um að leikurinn er ekki svona hægur í alvörunni, þetta er screencapture forritinu að kenna. Að lokum vil ég þakka Thomas Hard fyrir að ljá okkur rödd sína og fyrir playtest.



DivX 10 MB


Við kláruðum að prenta klukkan 2 í dag og ég og Fróði fórum í skólann og skiluðum. Þar er eitthvað svaka dæmi í gangi, einhver tæknisýning. Ókeiðis inn fyrir ITU nemendur. Hellingur af kúl dóti.. og 3 X-BOX 360 vélar! Mér fannst grafíkin alveg ágæt í leiknum mínum þangað til að ég sá þetta. Einn Leikurinn hét Elements of Power eða eitthvað álíka, en hann er ekki lengur í framleiðslu. Þetta var semsagt bara demo. More like DAMN-O! Flottasta grafík sem ég hef nokkrusinni séð. Loðnir karakterar og allir fletir normalmappaðir og svo keyrði þetta eins og smjör. Smjör á sterum. Ég prófaði svo einhvern lala skotleik, anyway I want one.
Ég og Fróði prófuðum stresstest kapphlaup. Við sátum í sófa og fengum leiðandi gel á 2 putta sem við svo settum á einhver rafskaut. Þá var einhver þrívíddar karakter sem labbaði áfram, hægar eftir því sem þú ert stressaðri.
Það voru líka 2 iðnaðarróbótar sem DJ-uðu. Þeir litu út eins og eitthvað sem venjulega býr til bíla, bara einn stór armur. Þeir tóku plötur sem var raðað í kring um þá og settu undir nál, og svo sneru þeir plötunum sjálfir. Massatöff! Stundum fór annar að dansa meðan hinn spilaði tónlist.
Annað töff var 3d skjár. 2 myndavélar í toppnum tracka andlitið og stjórna svona "linsum" sem stýra ljósinu frá skjánum í sitthvort augað. Þetta virkaði mjög vel. Stykkið kostar 10000 evrur, skítur á priki!
Svo var gaur frá MIT media labs með ´mjög súra pælingu: Það var svona flatur skjár með 3 stórum tökkum. Þetta leit út eins og mjög einfald snertiskjás dæmi. Á einum takkanum stóð Banana, á næsta stóð Coconut og á þriðja stóð Butter. Ég ýtti á banana. Ekkert gerist. Þá segir gaurinn "Þetta er ekki snertiskjár, Notaðu músina og láttu sem að þetta sé snertiskjár". Okei.. ég ýti á Banana með músinni, átti víst að ýta líka á skjáinn því að það sprautaðist banana lyktandi vökvi á skjáinn og skjárinn sýndi myndir af bönunum. WTF. Fróði spyr hann af hverju hann hafi gert þetta og hann segir bara "I don´t know". Weird.
Svo var þarna vél sem lætur jellybeans í skál þegar þú færð email. Mismunandi baunir eftir innihaldi emailsins.
Anyway. Ég semsagt kominn aftur eftir tveggja vikna fjarveru!

8 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Copyright!

3:34 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með leikinn!, ég er sérstaklega ánægður með hversu ó-pc hann er :), dauðu grindhvalirnir gefa gott touch...

3:05 e.h.  
Blogger Guðný Ella said...

Geðveikt! Töff!

3:24 e.h.  
Blogger Balur said...

töffröffaðasti leikur í heiminum!

4:31 e.h.  
Blogger Palli said...

Ég er búinn að komast að því hvernig ég get búið til install fyrir leikinn. Þá geta allir spilað hann án vandræða. Þetta er í vinnslu!

4:36 e.h.  
Blogger T said...

Kúl. Make it happen!

6:14 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Maður verður bara að segja "Pretty good"!
Djöfull hefði ég viljað vera á sýningunni þarna. Þetta dót virkar allt geðveikt töff! Já, svo langar mig geðveikt í X-box 360 en jafnvel enn meira í Playstation 3 þegar hún kemur. Sá demonstration video sem var geðveikt.

9:44 e.h.  
Blogger Palli said...

Hey, rétt upp hönd sem hafur prófað xbox 360!
*hönd*

10:28 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home