ScummVm DS
Árið 1992 bað ég um Game Boy í afmælisgjöf. Ég fékk í staðinn Sega Game Gear og var ótrúlega ánægður með hana, enda með litaskjá (og Sonic)! Ég á 15 leiki á hana og hef oft dreymt um að eignast fleiri. Eina tilboð sem ég hef gert á Ebay var í gamla Sega Game Gear leiki en ég var ekki með hæsta boðið.

Árið 2003 fór ég til Bandaríkjanna í útskriftarferð. Þar keypti ég mér Nintendo Game Boy Advance (SP útgáfuna) ferðaleikjatölvu á $100. Ég á einmitt 12 leiki fyrir hana. Nokkrir eru gamlir PC leikir (Eye of the beholder, GTA, Broken Sword).

Svo í ár þegar ég var í Atlanta þá keypti ég mér Nintendo DS ferðaleikjatöluna á $130.

Þegar ég fór til Japan þá keypti ég mér CycloDS Evolution kort fyrir DS- inn. CycloDS er cartridge (hef ekkert íslenskt orð fyrir það) sem fer í sama slot og venjulegur leikur. Þetta er hins vegar eins og stýrikerfi fyrir MicroSD minniskubb sem er stungið er inn í venjulega cartridge-ið.
Ég hef verið að dunda mér við það undanfarið að downloada leikjum fyrir DS-inn og home brew forritum. Home brew eru forrit sem eru gerð af fólki úti í bæ. Eitt af þessum forritum er ScummVM DS port af ScummVM sem er forrit sem maður getur notað til að spila gömlu klassísku Adventure leikina. Ég hef semsagt verið að spila Sam and Max, Simon the Sorcerer og Fate of Atlantis á DS-num sem er púra snilld.
Aðrir leikir sem ég hef verið að prófa eru Doom leikirnir og jafnvel Quake! Svo er ég að reyna að fá vafra til að virka á þráðlausa netinu hérna heima. Þá get ég legið uppí í rúmi, spilað klassíska Adventure leiki og vafrað eftir lausnum þegar ég festist (það er ekki svindl ef maður hefur klárað leikinn áður!).
Í Japan keypti ég mér líka 4 gamla Sega Game Gear leiki. Mickey Mouse and the Castle of illusion, Outrun, Lemmings og einhvern Japanskan RPG. Úrvalið á Game Gear leikjum var ekki jafn gott og hjá Super Famicom (Super Nintendo):

1 Comments:
Super Potato! Góð búð.
Skrifa ummæli
<< Home